Að granda flugvélum

Almennt — Jói on janúar 21, 2010 at 03:51

Ég keyrði systur mína og 12 vetra gamlan son hennar út á alþjóðaflugvöllinn í Keflavík í gær. Sonurinn var eitthvað smeykur við að vélinni yrði grandað yfir Atlantshafinu akkúrat þegar hann væri í henni. Við tveir ræddum þetta aðeins og samtalið var svona:

“Ég er viss um að einhverjir Nígeríusvindlarar sprengi vélina á leiðinni til Köben!” sagði hann og virtist áhyggjufullur.
“Neinei, það er mjög öruggt að fljúga í dag, það eru þúsundir vélar í loftinu akkúrat núna og afar sjaldgæft að flugvél farist.” svaraði ég til að slá á áhyggjurnar.
“En hún gæti alveg hrapað.” sagði hann til að slá öll vopn úr höndum mér.
“Ja, það eru margfalt meiri líkur á því að við lendum í bílslysi á leiðinni út á völl heldur en að lenda í bílslysi.” sagði ég.

Hann horfði í kringum sig og þrýsti sér niður í sætið og virtist allt í einu orðinn bílhræddur í ofanálag.

“Það eru meiri líkur á því að þú vinnir lottóið á laugardaginn heldur en að þú lendir í flugslysi!” bætti ég við.

Það var þögn í bílnum á meðan hann var að melta þetta allt og nokkrum mínútum síðar ávarpaði hann móður sína:

“Mamma, eigum við að kaupa lottómiða á flugvellinum?”

0 Comments »

Engin ummæli ennþá.

RSS-veita fyrir umræðu um þessa færslu. TrackBack URI

Rita ummæli

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn