Ungdómur
Ég snæddi kvöldverð með 12 ára frænda mínum heima hjá móður minni í gær. Yfir matnum lét hann gamminn geysa um það hvað honum langar að gera núna og í framtíðinni. Það sem þarf kom fram var eftirfarandi:
- Hann langar í mótorhjól.
- Hann langar að fá sér tattú
- Hann langar að hætta í skóla
- Hann langar að fá vinnu í Bónus
Þegar ég var á hans aldri vissi ég ekkert hvað ég vildi gera eða vera. Ég verð að gefa ungdómnum í dag prik fyrir að hafa sterka framtíðarsýn og vera með skýr markmið. Ægir frændi rokkar!
0 Comments »
Engin ummæli ennþá.
RSS-veita fyrir umræðu um þessa færslu. TrackBack URI