Frábær bíómynd
Okuribito - Departures
Við Sonja sáum þetta Japanska meistaraverk fyrir nokkrum dögum síðan og hefur hún setið í okkur báðum. Myndin er mjög einföld en samt mjög ljóðræn og djúp … ef svo má segja. Hún vann óskarinn sem besta erlenda myndin í síðustu eða þarsíðustu verðlaunaafhendingu sem segir meira en mörg orð. Ég mæli með að fólk kíki á þessa mynd ef það vill sjá öðruvísi mynd en þessar hefðbundnu Hollywood myndir.
*****
Ein ummæli »
RSS-veita fyrir umræðu um þessa færslu. TrackBack URI
Mig langar einmitt að sjá hana - en hvar er hún fáanleg?