Ástandið í miðborginni um helgar

Almennt — Jói on ágúst 24, 2008 at 09:35

Á vefmiðlum í dag hef ég lesið um að ölvun hafi verið mikil í nótt á menningarnótt og íbúar í miðbænum kvarta yfir drykkjulátum. Hinsvegar virðist lögreglan nokkuð sátt með ástandið í nótt og segir það ekki hafa verið mikið verra en gengur og gerist um helgar.

Unnusta mín er í björgunarsveit og var í hópi hjálparsveitarmanna sem gekk með hópi lögreglumanna í nótt í gæslu. Hún átti ekki orð yfir það virðingaleysi og dónaskap sem stór hluti fólks sýndi lögreglunni í miðbænum. Gert var hróp af þeim stanslaust, þeir kallaðir aumingjar og margt mun verra. Glerflöskum var kastað í átt að þeim og allt gert til að ögra þeim og gera þeim starfið erfitt eða jafnvel ómögulegt. Þetta var svo algengt að lögreglan getur ekki annað gert en látið svona dólgslæti sem vind um eyru þjóta enda myndi hún þurfa að drusla hálfum miðbænum í fangaklefana ef þeir ætluðu að koma vitinu fyrir fólkið.

Eins voru mun alvarlegri atburðir í bænum, hópar af piltum gengu í skrokk á fólki ásamt öðrum slagsmálum en það flokkast sennilegast undir vikulega viðburði í bænum. Þetta er semsagt venjuleg helgi - hvernig eru slæmu helgarnar? Er þetta eitthvað sem við þurfum að sætta okkur við?

“Hvað er fokkings að helvítis löggunni … hún má ekki blamma hann niður, það eina sem hann gerði var að kalla hana fávita!” sagði ungur strákur við hópinn þegar lögreglan hafði reynt að róa vin viðkomandi niður í korter og þurfti á endanum að handtaka hann vegna framkomu hans. Merkilegt að fólk finnst eðlilegt að kalla lögregluna fávita.

“Það ætti að sæma alla lögreglumenn heiðursmerki eftir hverja vakt í miðbænum!” sagði hún þegar hún kom heim hálfvegis í sjokki yfir því hvernig fólk hegðar sér þegar það er að skemmta sér.

Tengdó er með það alveg á hreinu hvað veldur þessu: Hún segir að fyrir nokkrum árum hafi verið farið í herferð til að ung börn væru ekki hrædd við lögguna. Löggan mætti í leikskóla og niður á laugaveg þar sem hún söng og dansaði barnalög með börnunum. Þetta er sá árgangur sem er niðri í bæ um helgar … í staðinn fyrir að hræðast lögguna eins og fullorðnir frændur mínir fyrir vestan gera, þá hafa börnin misst alla virðingu fyrir löggæslumönnum.

Ég held reyndar að vandinn risti dýpra - ungt fólk í dag ber ekki virðingu fyrir neinu enda oft ekki uppalið!

Ætli eina lausnin á þessu sé ekki bara að hafa herskyldu, en þar sem við höfum ekki her láta fólk stunda löggæslustörf í eitt ár, t.d. þegar það nær 18 ári. Það myndi slá margar flugur í einu höggi, fólk myndi læra heraga, sjá með eigin edrú augum hvernig ástandið er í bænum, fengi smá snertingu af uppeldi og auka til muna fólk í löggæslustörfum. Eitthvað þarf a.m.k. að gera, þetta stefnir í óefni.

Eitt spaugilegt atriði átti sér stað um nóttina: Lögregluhópurinn var að fara yfir laugarveginn og beið eftir að bílaumferðin myndi staðnæmast og kemur þá ung stúlka aðvífandi og gengur rösklega út á götuna og stoppar umferðina. Bendir síðan lögreglunni að koma yfir með handabendingum eins og umferðalögregla myndi gera. Hópurinn gekk yfir götuna og þakkaði fyrir sig. Kannski erum það við sem ættum að þakka lögreglunni fyrir það erfiða og vanþákkláta starf sem þeir þurfa að inna af hendi af því að við kunnum ekki lengur að ala upp börnin okkar.

Ég læt fylgja með mynd sem ég tók af meistara Megas á tónleikum á menningarnótt en Megasukk voru frábærir í portinu bakvið veitingastaðinn Við Tjörnina.

6 ummæli »

  1. Ástæðan sem þú vilt meina að sé fyrir virðingarleysi fyrir laganna vörðum, á tæpast við rök að styðjast. Jújú, fyrir ári síðan var eflaust eitthvað um slíka pústra milli lögreglu og borgara, en aðalástæðan fyrir þessu virðingarleysi, sem þú hlýtur að átta þig á, er framganga þeirra við Olís við suðurlandsveg nú í vor. Framganga þeirra þar, var svo fáránleg og ömurleg, að stór hluti borgarbúa missti endanlega allt álit á þessari svokölluðu “lögreglu”. Sá atburður á eflaust langstærstan þátt í þessu virðingarleysi og satt best að segja, eiga þeir það fyllilega skilið.

    Ummæli ritaði Pétur — 24. ágúst 2008 @ 17:34
  2. Já ég er að mörguleiti sammála þér nema þetta innlegg um herskyldu á Íslandi sem betur fer er hvorki Íslenskur her né herskylda hér held að hún sé miklu frekar mannskemmandi en mannbætandi sérstaklega ef þú lendir í stríði sjáðu bara hvernig margir komu heim frá nam. Ég tek það samt fram að ég er ekki neinn kommi eða herstöðvarandstæðingur og fór ekki í keflavíkugöngu í gamladaga. ÉG held reyndar að þetta geti virkað á báða vegu það er auðvitað til fólk sem er fífl sem kemur illa fram við lögregluna og ég er viss um að 90% lögreglu manna sé gott fólk en því miður hin 10% eru búnir að horfa á allt of margar rambo og steven seagal myndir og eru bara fasistar og hrottar og ættu bara frekar að vera hjá sálfræðing að vinna í sínum málum frekar en að vera í lögguni

    Ummæli ritaði Þórarinn Sigfússon — 24. ágúst 2008 @ 17:54
  3. Flott grein og sammála þer upp að sama magni og þórarinn. Heyrði einu sinni af erlendum lögreglumanni af norðurlöndunum sem var staddur hér á menningarnótt fyrir nokkrum árum, hann átti ekki til orð og spurði hvar í fjandanum óeirðarlögreglan væri til að skakka leikinn því þetta væri nú komið út í algjört kaos. svarið við því var að þetta væri bara venjulegt.

    Vandamálið við virðingarleysinu gagnvart lögreglunni tel ég að séu fjölmiðlar og blogg, því á þessum miðlum er hægt að afskræma og breyta því sem nákvæmlega gerðist. Munum ummælinn á ég að finna einhvern til að kasta steini í lögregluna og lúkasarmálið þar sem einni hlið málsins var trúað og allt tjúllaðist. Fjölmiðlar og blogg verða einfaldlega að lúta ákveðnum reglum og tel ég að fjölmiðlar ættu að ganga undir ákveðinn siðferðispróf eins og t.d lögreglumenn gera.

    Auðvitað sleppa alltaf einhverir vitleysingar inn í öll störf þar með talið lögregluna En ég vil þakka þeim fyrir góð störf.

    Ummæli ritaði Arnar — 24. ágúst 2008 @ 19:57
  4. kemur kannski hálf illa út ég vil þakka hinum heiðarlegu lögreglumönnum góð störf en ekki hinum

    Ummæli ritaði Arnar — 24. ágúst 2008 @ 19:58
  5. Góð grein.

    Ummæli ritaði Guðmundur — 25. ágúst 2008 @ 01:19
  6. Íslendingar eru yfirgengilegir durgar og dónar, en þetta er allt í uppeldinu, eða skortinum á því, öllu heldur. Hvergi nokkurs staðar meðal siðaðra þjóða myndi sú vanvirðing sem við sýnum opinberum starfsmönnum eins og kennurum eða lögreglumönnum, vera liðin eins og hér. Boð, bönn og reglur eiga yfirleitt ekki við nema um aðra, finnst okkur.

    Ummæli ritaði Hans — 25. ágúst 2008 @ 04:00

RSS-veita fyrir umræðu um þessa færslu. TrackBack URI

Rita ummæli

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn