Þrívíddarhugbúnaður, Maya, Cinema 4d og Blender

3D — Jói on febrúar 25, 2010 at 04:28

Við Hjölli erum búnir að taka nokkra snúninga á því hvaða hugbúnað í þrívídd við ætlum að mastera. Við fórum á langt og gott námskeið í London og náðum þar ágætis tökum á Maya sem er svona “industry standard” í þessum geira. Hugbúnaður sem er notaður í myndir eins og Avatar og flr.

Maya
Hérna eru nokkur sýnidæmi af því þegar ég var að nota Maya:


Lokaverkefnið í Escape Studios, módel af gamalli myndavél sem ég á sjálfur.


Flugvél á leiðinni á vígstöðvarnar. Þyrfti að setja texture á hana og einhver merki. Þetta er speetfire ef ég man rétt.

Við Hjölli erum sammála því að Maya er afskaplega leiðinlegur, þungur, böggaður og með skelfilegt viðmót. Við ákváðum því að nota ekki þann pakka í persónuleg verkefni. Auk þess kostar pakkinn um milljón.

Cinema 4D
Við ákváðum því að snúa okkur að Cinema 4d sem er ansi skemmtilegur og öflugur pakki og notaður víða í bransanum.

Við prófuðum okkur áfram í nokkra mánuði með þennan hugbúnað og vorum nokkuð hrifnir. Það stærsta sem ég gerði í þessu var að módela kaffivél sem ég er með í eldhúsinu heima. Útkoman var svona:

Ég bjó einnig til þennan skúlptúr, veit ekki alveg hvað hann á að standa fyrir:

Að lokum var ég að vinna í landslagi sem gæti orðið bakgrunnur lítillar teiknimyndar sem við Hjölli vorum að pæla í. Þetta var komið svona:

Blender 2.5
Nú hefur Hjölli tekið þá ákvörðun að nota ekkert annað en “Open-source” hugbúnaðinn Blender sem er að detta í útgáfu 2.5. Hann er öðruvísi en Maya og Cinema 4d að hann kostar ekkert og er með nýjustu útgáfunni að verða nokkuð frambærilegur. Við höfum því tekið ákvörðun um að henda Maya og Cinema 4d og snúa okkur alfarið að Blender. Ég er byrjaður að læra á hugbúnaðinn og er kominn þetta langt:

Eins og sést á ég mikið verk fyrir höndum að ná tökum á Blender en við Hjölli erum báðir spenntir fyrir þessum nýja pakka og ætlum að temja hann og mastera.

Læt vita síðar hvernig það gengur.

Samtal á fimmtudagskvöldi

Almennt — Jói on febrúar 4, 2010 at 13:49

Ég var að gramsa í skúffunni þar sem Fig-Rolls kexið er vanalega geymt:

Sonja: “Hvað ertu að gera?”
Jói: “Ég er svangur … er ekki til eitthvað kex?”
Sonja: “Fáðu þér bara epli!”
Jói: “Mig langar ekki í epli”
Sonja: “Nú, þá ertu ekki svangur!”
Jói: “Heyrðu, ég fór að heiman á sínum tíma til að losna við svona athugasemdir!”
Sonja: “Ég vil ekki að Bjartur heyri svona, maður á að borða hollan mat!”

Það að eignast barn er kannski enginn barnaleikur eftir allt saman.

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn