Portraitmyndir frá Púskar á Indlandi

Ferðalög, Ljósmyndun — Jói on júlí 25, 2009 at 04:05

Við erum þessa dagana að vinna að seinna bindinu í ferðasögu okkar til Indlands. Skemmtilegt að skoða myndirnar þegar svona langt er liðið því maður uppgötvar nýjar myndir sem maður man varla eftir að hafa tekið og vöktu enga sérstaka athygli hjá manni þegar maður sá þær síðast. Hérna eru tvær myndir sem ég uppgötvaði þegar ég var að skoða myndirnar í gær og sýna þær ágætlega litina í slæmum kvenna á kamelhátíðinni í Púskar.

Við þurfum að fara að hespa þessari bók af því ég er með fullt af verkefnum í huganum sem bíða og ég er að fjarlægjast bókina smátt og smátt. Hún er þó 90% tilbúin þannig að ég geri ráð fyrir að við klárum hana í næsta mánuði ef guð og gæfa lofar.

Rétttrúnaður

Almennt — Jói on júlí 24, 2009 at 06:44

Ég er byrjaður að ala Gugg upp í því að halda með Liverpool og styðja Sjálfstæðisflokkinn. Ég er að skapa grunn fyrir snörp og hressileg skoðanaskipti á heimilinu þegar hann eldist.

jj n° 2

Tónlist — Jói on júlí 19, 2009 at 07:46

Er að hlusta á alveg stórgóðann disk sem ég uppgötvaði fyrr í dag. Það er með sænskri hljómsveit sem kallar sig jj og platan heitir jj n° 2. Þetta er svona “feel-good” tónlist í anda We are from Barcelona, Knive og FM Belfast. Það er nánast eindæmi að ég nái disk við fyrstu hlustun en það gerðist í þessu dæmi. Ég vildi bara að hann væri lengri. Á köflum minnir söngur söngkonunnar á söng Ian Brown (ótrúlegt en satt) sem einhver sagði einhverntíman að væri besti söngvari í heimi.

Annars er hægt að lesa um þegar leiðir Eldklerks og Ian Browns skárust hérna: London Brown

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn