Gler og hlutir í þrívídd

3D — Jói on mars 24, 2009 at 07:49

Tók mig til í hádeginu og bjó til nokkra einfalda hluti og setti mismunandi yfirborð á þá. Var að prófa glerefni í Cinema 4D og þetta virðist koma nokkuð eðlilega út. Tölvan var um 15 mínútur að búa til “render” af myndinni þannig að þetta voru nokkuð þungir útreikningar.

Blýantsteikningar í Cinema 4D

3D — Jói on mars 21, 2009 at 03:32

Teikning

Við Hjölli (og kannski Pálmi) höfum verið að prófa okkur áfram með Cinema 4D sem er virkilega öflugur hugbúnaður til að gera allt sem hugmyndaflugið kemur upp með í þrívídd. Við gáfumst eiginlega upp á Maya (sem við reyndar fórum á námskeið í í 3 mánuði í London) vegna þess að það er meingallaður hugbúnaður og flækjustigið svo mikið að maður þarf helst að hafa unnið í “bransanum” í 3-4 ár til þess að vera slarkfær á hann. Í cinema 4d kemst maður mun lengra á skemmri tíma þó að það sé hægt að gera aðeins meira í Maya enda er Maya notað í tæknibrellur í flestum Hollywood myndum í dag.

Ég var að prófa mig áfram með sketch renderingu og það er hægt að fá skemmtilegar útkomur með þessum render. Hægt er að láta 3d myndir líta út eins og venjulegar teiknimyndir, búa til flottar verkfræðiteikningar eða láta 3d módelið líta út eins og blýantsteikningar. Þetta eru bara tveir hlutir sem ég henti upp á 10 sekúndum.

Hérna er önnur mynd:

Síðan bjó ég til smá animation með þessu útliti sem sýnir hvað þetta getur verið öflugt: Hreyfimynd

Góðar stundir.

Kvikmyndatónlist

Kvikmyndir, Tónlist — Jói on mars 8, 2009 at 04:05

Ég hef alltaf haft gaman af kvikmyndatónlist. Finnst hún oft lágstemmdari en þessi dæmigerða tónlist sem hljómsveitir dæla út og ef maður þekkir innihald myndanna sjálfra getur hugmyndaflugið farið á ferð þegar maður hlustar á slíka tónlist. Eins er kvikmyndatónlist náttúrlega oftast meira þemakennd heldur en gerist á flestum diskum. Uppáhalds tónlistin mín úr kvikmyndum má t.d. nefna úr Arizona Dream (klárlega í fyrsta sæti), The Last Mohican, Edward Scissorhands, Dead Man, O Brother, Where Art Thou?, The Virgin Suicides, Kill Bill, Underground (stórkostleg tónlist), The Graduate, Dracula, Manhattan, Koyaanisqatsi, Assassination of Jesse James, Rocky Horror o.flr.

Þessa dagana er ég að hlusta á nýja kvikmyndatónlist og ber þar hæst tónlist úr myndunum Coraline, Vantage Point, Mongol, Vicky Cristina Barcelona, Christmas on Mars og Slumdog Millionaire. Mæli með þessu fyrir þá sem hafa gaman af vandaðri tónlist.

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn