3d eða 4d … það er spurningin

Glös sem é henti saman í gær sem fyrsta project í C4D.
3d pælingar hjá okkur Hjölla hafa gengið mun hægar en við vonuðumst til. Við virðumst ekki hafa þann tíma í þetta sem þarf og spurning hvað skal til bragðs taka. Maya er algjört monster og maður er mjög lengi að gera einfalda hluti í því, og skrefin gleymast fljótt því forritið er einstaklega flókið. Á móti kemur að það er það sem iðnaðurinn notar og hægt að gera allt í því, enda er það notað í flestum 3d myndum og myndum sem eru með mikla þrívídd.
Við uppgötvuðum nýlega annað forrit sem er að gera ágæta hluti. Viðmótið á því forriti er himnaríki miðað við það sem Maya er með og það virðist geta gert flest af því sem við þurfum að gera. Maður er miklu fljótari að gera einfalda hluti og þó að það sé aðeins takmarkaðra þá ætti það ekki að hamla okkur. Nú þurfum við Hjölli bara að finna tima í að fara að vinna í þessum málum, ha, Hjörleifur?!
Forritið heitir Cinema 4d.