SQL Server 2005

Tölvur — Jói on nóvember 27, 2008 at 03:50

“SQL-Server 2005 er í raun mjög góður gagnagrunnur þangað til það koma gögn til sögunnar.” sagði Búrkni.

Ljósmynd tekin á leið til Kasmír

Ferðalög, Ljósmyndun — Jói on nóvember 21, 2008 at 04:52

Þessi mynd er tekin í fjöllunum á milli Ladakh og Kasmír þegar við vorum á leið til borgarinnar ófriðsömu Srinagar. Ég held að þetta sé ein af betri myndunum sem við tókum í ferðinni og er ég að spá í að stækka hana upp í um meters breidd og innramma upp á vegg, held hún höndli það þar sem hún var tekin með hárri upplausn.

Að kunna fótbolta

Knattspyrna — Jói on nóvember 15, 2008 at 06:48

Ég ræddi í síma við lítinn frænda minn sem býr á Patreksfirði og er um 7-8 ára.

Hann sagði mér frét því að Sigfús handboltakappi hafi komið í íþróttahúsið til að kenna þeim skotbolta. Ég spurði hann hvort hann væri að æfa handbolta og hann játti því. Ég spurði hann þvínæst hvort hann væri líka að æfa fótbolta en hann svaraði því að hann kynni fótbolta og þyrfti því ekki að æfa hann. Hann kynni m.a.s. að taka skæri. Maður spyr af hverju atvinnumenn eru eiginlega að fá borgað fyrir að æfa, kunna þeir ekki fótbolta?

Leiðinlegir frasar

Almennt — Jói on nóvember 7, 2008 at 15:45

Þó ég sé manna jákvæðastur þá er best að færa nokkur orð og frasa til bókar sem mér leiðast:

Kósíkvöld
Bumbubúi
Rómó
Drottningar (í samhengi um fallegt kvennfólk á djamminu)
Heildarlausn
Guðlaugur Þór
Sigurður Kári
“Heyrðu” í upphafi svars
“Oh, my god” og “Oh, my gosh”

Ég mælist til þess að þeir “karlmenn” sem nota eitthvað að fyrstu þrem orðunum í daglegu tali verði vanaðir … nei, tek það til baka, það er pottþétt búið að því.

Saga sendibílstjórans

Almennt — Jói on nóvember 6, 2008 at 17:12

Sendibílstjóri sem ég hitti fyrr í kvöld sagði mér þessa reynslusögu úr bransanum:

Stundum þegar fólk er að flytja búslóðir er það alls ekkert búið að klára að pakka þegar hann mætir gallvaskur á staðinn til að flytja og þarf hann oft að hjálpa við síðustu skrefin í pökkun. Eitt skiptið mætti hann á stað til að flytja búslóð og bjó þar maður einn og var haugadrukkinn og auk þess ekki byrjaður að pakka. Hann spurði sendibílstjórann hvort hann gæti bara ekki pakkað fyrir sig og flutt síðan dótið, og svaraði bílstjórinn því til að það tæki hann nú alveg heilan sólarhring, sem sá drukkni samþykkti. Hann fór og skildi sendibílstjórann eftir við innpökkunina en kom öðru hvoru yfir daginn í leigubíl til að athuga hvernig honum gengi við verkið. Menn eru mis léttir á því.

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn