Klæðnaður á vinnustað

Vinna — Jói on ágúst 26, 2008 at 02:20

Þegar ég mætti í vinnuna í morgun voru vinnufélagar mínir steinhissa á því hvað ég væri fínt klæddur. Það væri svosem í lagi ef ég hefði ekki bara verið í gallabuxum og peysu.
Tvær hugsanir fóru um huga minn: Þarf ég að endurskoða hvernig ég klæðist og hvernig var ég eiginlega klæddur í vinnunni í gær?

Ástandið í miðborginni um helgar

Almennt — Jói on ágúst 24, 2008 at 09:35

Á vefmiðlum í dag hef ég lesið um að ölvun hafi verið mikil í nótt á menningarnótt og íbúar í miðbænum kvarta yfir drykkjulátum. Hinsvegar virðist lögreglan nokkuð sátt með ástandið í nótt og segir það ekki hafa verið mikið verra en gengur og gerist um helgar.

Unnusta mín er í björgunarsveit og var í hópi hjálparsveitarmanna sem gekk með hópi lögreglumanna í nótt í gæslu. Hún átti ekki orð yfir það virðingaleysi og dónaskap sem stór hluti fólks sýndi lögreglunni í miðbænum. Gert var hróp af þeim stanslaust, þeir kallaðir aumingjar og margt mun verra. Glerflöskum var kastað í átt að þeim og allt gert til að ögra þeim og gera þeim starfið erfitt eða jafnvel ómögulegt. Þetta var svo algengt að lögreglan getur ekki annað gert en látið svona dólgslæti sem vind um eyru þjóta enda myndi hún þurfa að drusla hálfum miðbænum í fangaklefana ef þeir ætluðu að koma vitinu fyrir fólkið.

Eins voru mun alvarlegri atburðir í bænum, hópar af piltum gengu í skrokk á fólki ásamt öðrum slagsmálum en það flokkast sennilegast undir vikulega viðburði í bænum. Þetta er semsagt venjuleg helgi - hvernig eru slæmu helgarnar? Er þetta eitthvað sem við þurfum að sætta okkur við?

“Hvað er fokkings að helvítis löggunni … hún má ekki blamma hann niður, það eina sem hann gerði var að kalla hana fávita!” sagði ungur strákur við hópinn þegar lögreglan hafði reynt að róa vin viðkomandi niður í korter og þurfti á endanum að handtaka hann vegna framkomu hans. Merkilegt að fólk finnst eðlilegt að kalla lögregluna fávita.

“Það ætti að sæma alla lögreglumenn heiðursmerki eftir hverja vakt í miðbænum!” sagði hún þegar hún kom heim hálfvegis í sjokki yfir því hvernig fólk hegðar sér þegar það er að skemmta sér.

Tengdó er með það alveg á hreinu hvað veldur þessu: Hún segir að fyrir nokkrum árum hafi verið farið í herferð til að ung börn væru ekki hrædd við lögguna. Löggan mætti í leikskóla og niður á laugaveg þar sem hún söng og dansaði barnalög með börnunum. Þetta er sá árgangur sem er niðri í bæ um helgar … í staðinn fyrir að hræðast lögguna eins og fullorðnir frændur mínir fyrir vestan gera, þá hafa börnin misst alla virðingu fyrir löggæslumönnum.

Ég held reyndar að vandinn risti dýpra - ungt fólk í dag ber ekki virðingu fyrir neinu enda oft ekki uppalið!

Ætli eina lausnin á þessu sé ekki bara að hafa herskyldu, en þar sem við höfum ekki her láta fólk stunda löggæslustörf í eitt ár, t.d. þegar það nær 18 ári. Það myndi slá margar flugur í einu höggi, fólk myndi læra heraga, sjá með eigin edrú augum hvernig ástandið er í bænum, fengi smá snertingu af uppeldi og auka til muna fólk í löggæslustörfum. Eitthvað þarf a.m.k. að gera, þetta stefnir í óefni.

Eitt spaugilegt atriði átti sér stað um nóttina: Lögregluhópurinn var að fara yfir laugarveginn og beið eftir að bílaumferðin myndi staðnæmast og kemur þá ung stúlka aðvífandi og gengur rösklega út á götuna og stoppar umferðina. Bendir síðan lögreglunni að koma yfir með handabendingum eins og umferðalögregla myndi gera. Hópurinn gekk yfir götuna og þakkaði fyrir sig. Kannski erum það við sem ættum að þakka lögreglunni fyrir það erfiða og vanþákkláta starf sem þeir þurfa að inna af hendi af því að við kunnum ekki lengur að ala upp börnin okkar.

Ég læt fylgja með mynd sem ég tók af meistara Megas á tónleikum á menningarnótt en Megasukk voru frábærir í portinu bakvið veitingastaðinn Við Tjörnina.

Kaffivagnsbúggí

Kaffi og kaffihús — Jói on ágúst 21, 2008 at 03:01

Dagur er með góðan smekk á kaffihúsum:

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, fór yfir borgarmálin á fundi í Kaffivagninum Grandagarði í morgun.

Lokakaffi á móti Hallgrímskirkju er einnig gott kaffihús sem nýverið opnaði. Ekkert slær samt út að fara á sunnudagsmorgnum með Sonju á Súfistann á laugarveginum og fá sér morgunkaffi, kíkja í blöð og leggja drög að heimsyfirráðum.

JT fyrirliði

Knattspyrna, Íþróttir — Jói on ágúst 20, 2008 at 01:58

Sá eftirfarandi klausu hjá áhanganda enska landsliðsins um að John Terry hafi verið gerður að fyrirliða:

“Great - makes life a lot easier. There is something so fitting that England - home to gratuitous, mindless violence, churlish, boorish behaviour, rampant in-your-face materialism and a brainless tabloid culture choose this hideous urinating lout to captain our national team of overpampered, overpaid, undertalented morons. May they fail in every endeavour.”

Annar hafði þetta um málið að segja:

“Rio has more pace, is better at heading and tackling, and has a greater tactical understanding of the game (for me the most important quality in a captain). Maybe Capello went with JT as he has more experience in leading a side of overpaid underahievers!”

Íslenska landsliðið er að gera frábæra hluti þarna úti - ég ætla að horfa á næsta leik þeirra.

Fyrsta málverkið mitt

Listir — Jói on ágúst 18, 2008 at 12:46

Jæja, þá er maður loksins búinn að henda í málverk - hefur verið á hinum óskaplega langa “to-do” lista mínum.

Ég keypti trönur, liti og annað sem þarf og málaði sandinn í Hvestu, kannski hver að vera síðastur til að gera það. Ég er þokkalega ánægður með þetta fyrsta verk, samt mikið svigrúm til að bæta sig - ætli ég spreyti mig ekki á andlitsmynd eða einhverju slíku næst. Síðar gæti maður síðan málað svona 3ja metra langt málverk af öllum Ketildölunum og notast við ljósmyndir frá því þegar við Sonja keyrðum út Arnarfjörðinn norðanmegin.

20080822_0018_5D.jpg
Hérna er ég að mála meistaraverkið.

20080822_0028_5D.jpg
Hérna er síðan verkið sjálft.

Stefán frá Möðrudal hvað - ég sé ekki betur en ég sé miklu meiri naívisti en hann!

100.000 gesturinn

Almennt — Jói on ágúst 5, 2008 at 04:16

Jæja, ég hef ákveðið að gefa 100.000 gestinum verðlaun sem verður ein pizza eins og gjarnan er gert á verri útvarspstöðvum.

100.000 gesturinn fær semsagt eina pizzu. Teljarinn er kominn upp í 3.204 þannig að þetta er æsispennandi. Koma svo fólk!

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn