Ísland dýrt hvað?

Ferðalög — Jói on júní 29, 2008 at 14:23

Er Geir H. Haarde kannski snillingur?

Ég sat fyrr í kvöld á bar hérna í París með 500 ml bjór í hönd sem kostaði mig um 750 krónur íslenskar og áttaði mig þá á því að Geir H. Haarde veit “kannski” sínu viti. Íslendingar hafa kvartað yfir því undanfarin ár að Ísland sé dýrt land en þegar við komum til útlanda gátum við hagað okkur eins og kóngar enda allt fáránlega ódýrt. Núna er staðan breytt - verðlag á Íslandi er svipað og í útlöndum en fátt annað hefur breyst - getum við þá hætt að kvarta?

Fígaró

Bílar — Jói on júní 17, 2008 at 16:24

Við Hjölli höfum nokkrum sinnum rekist á (þó ekki bókstaflega) ótrúlega flotta litla smábíla sem við héldum fyrst að væru fornbílar. Við föttuðum í dag að þetta eru nýlegir bílar smíðaðir eftir gömlum aðferðum sem gerir þessa bíla nokkuð skemmtilega. Ég held sveimerþá að Nissan Figaro sem draumabíllinn minn.

Hann er sennilega einn af fáum bílum sem lítur líka vel út bleikur:

Það besta er að bíllinn kostar ekki nema frá 5þ pundum upp í svona 9þ pund enda um 17 ár síðan þeir voru framleiddir. Já, sveimerþá - ætli ég kaupi ekki bara einn svona.

Varalestur

3D, Kvikmyndir, Skóli — Jói on júní 16, 2008 at 08:48

Núna erum við að vinna í að gera “lyp-sync” á teiknimyndina okkar, þ.e. láta varir hreyfast með talinu. Jeff sagði okkur skemmtilega sögu frá því þegar hann vann hjá Pixar þá fór hann eitt skiptið í eitthvað fylki og eyddi á vegum Pixar einni helgi með öllum heyrnarlausum nemendum fylkisins í að kenna þeim að búa til teiknimyndir og sýna þeim Pixar teiknimyndir.
Hann fékk tölvupóst stuttu síðar frá einum foreldranum sem sagði honum að heyrnarlaus börn væri afskaplega hrifinn af myndum frá Pixar því þau gætu lesið af vörum persónanna það sem þau segja. Segir meira en mörg orð um það hvað Pixar leggur mikla vinnu í smáatriði.

Hattadagur

Almennt — Jói on júní 15, 2008 at 13:58

Nokkrar myndir til að seðja aðdáendur okkar Hjölla.


Einmanna listamaður - takið eftir myndinni af Hjölla sem ég hafði nýklárað að teikna.


Pub við Piccadilly.


Grayan.


Andy.


Hin stórkostlega nýja plata Sigur Rós er auglýst í neðanjarðarlestarstöðvum Lundúna.


Ég að gefa Hjölla sparisvipinn á Indverskum stað í síðustu viku. Í dag fórum við á einn af betri Indversku stöðum borgarinnar Veerasamy (sem er reyndar elsti Indverski veitingastaður í London) sem hefur verið starfræktur síðan 1926 og er hann við Regent Street.

Og þá er innihaldsríkasta bloggi mínu til þessa lokið.

Listasnobbarar og gagnrýnendur

Listir — Jói on júní 14, 2008 at 07:47

Við Hjölli fórum í búð sem selur vörur fyrir listamenn, þ.e. pensla, blýanta, striga, liti, strokleður og jafnvel penna. Ég keypti þar allskonar hluti til að stunda listsköpun mína en Hjölli vildi endilega að ég myndi kaupa mér pappírstætara.

Svo ég vitni í Harvay Korman sem lést í síðustu viku: My mind is a raging torrent, flooded with rivulets of thought cascading into a waterfall of creative alternatives.

Hollensk klipping

Knattspyrna — Jói on júní 13, 2008 at 13:44

Í tilefni glæsilegs sigurs Hollenska landsliðsins í kvöld ætla ég að fá mér Marco Van Basten klippingu á morgun.

Þvottadagur

Bjór, Knattspyrna, Listir, Skóli — Jói on júní 10, 2008 at 14:10

Það hefur lítið heyrst af okkur Hjölla hérna undanfarið og er það að hluta til vegna anna í skóla ásamt samkvæmislífi síðustu helgi. Skólinn gengur vel, Hjölli er reyndar ekki alveg sáttur með hvað hægt gengur í hans kennslu vegna þess að 1-2 nemendur eru seinni en aðrir en hann er samt að læra helling og það er það sem skiptir máli.

Ég er ekki aðeins að læra um animation í mínum bekk heldur hefur Jeff kennt okkur teikningu og það sem skiptir máli í leiklist. Við tókum heilan dag um daginn þar sem breskur leikhúsleikari kom, að nafni Richard Knight (http://mimethegap.com), og var með bekkin allan daginn að kenna okkur látbragðsleik og ýmislegt sem viðkemur leiklistinni. Allan daginn þufti maður að fara fyrir framan bekkinn hvað eftir annað og leika eða láta eins og kjáni og var þetta eins og heill dagur í samkvæmisleikjum. Í lokin höfðum við 10 mínútur til að semja leikrit í anda Commedie del’arte sem er tegund af leik þar sem allt er ýkt út úr korti og notast er við grímur til að túlka þekktar persónur úr þessu leikformi.
Það var frekar erfitt að takast á við þetta verð ég að játa en ætli stirðbusalegur og lokaður Íslendingaþurs hafi nú ekki bara gott af þessu? Ég held það bara.


Hérna vorum við í leik þar sem notast var við hvítar grímur og nemendur áttu að stilla sér upp eins og um fjölskyldumynd væri að ræða og reyna að túlka einn fjölskyldumeðlim án tals og restin af bekknum átti að giska á hvaða persóna þetta væri (ég ákvað að leika snobbaðann frænda).

Lokaverkefnið mitt mjakast sem felst í því að taka kvikmyndabút, eða tal úr kvikmynd réttara sagt, og setja það í nýjan búning í teiknimynd. Ég tók fyrir kafla úr Princess Bride og gleð þar sennilegast Halla vin minn ásamt því að ná að gleðja Búrkna líka með því að nota staðlaða grímu-með-gleraugu-nefi-og-yfirvaraskeggi grímu, sem hann hefur ákaflega gaman af. Ég set inn lokaútkomuna í lok næstu viku.

Við fórum í grillveislu til bekkjarfélaga Hjölla á laugardaginn sem er frá Sviss. Hann er að leigja lengst úti í rassgati og tók það okkur um klukkutíma að komast á staðinn. Eftir grillið fórum við á bar sem hann var búinn að sérvelja þarna í hverfinu og reyndist hann ansi fámennur. Eftir fyrri leikinn fórum við í annað hverfi þarna nálagt þar sem Graham, sem var þarna með okkur, gekk í háskóla á yngri árum og kynnti hann okkur fyrir helstu börum staðarins. Ágætt kvöld sem endaði nærri því illa þegar reiðhjólamaður hjólaði á Graham á fullri ferð þegar við vorum á leið heim en sem betur fer sluppu þeir með mikil meiðsli.

Læt nokkrar myndir fylgja ykkur til yndisauka:


Greham að búa til heimatilbúna hamborgara og gestgjafinn (vélaverkfræðingur en furðu heilbrigður að öðru leiti) spaugast við Hjölla.


Eitthvað verið að sprella þarna.


Setið úti í dæmigerðum enskum garði og beðið eftir borgurunum.


Fámennt en góðmennt á staðnum sem við horfðum á leikinn með Sviss.


Það er ekki nóg að drekka eintóman bjór, maður verður líka að fá næringu! Hérna erum við að fá okkur Esspresso.


Á leið heim seint um kvöldið.


Umvafinn fallegum svanasöng í Hyde Park á sunnudaginn.

Læt þetta duga í bili.

Kreppa

Almennt — Jói on júní 5, 2008 at 02:15

Það er auðvelt að kenna kreppu um - ef menn eru vinsælir þá ættu þeir nú að trekkja, eða hvað?

Hvað er annars fólk að kvarta svona mikið yfir kreppu - allt hefur verið á blússandi uppskriði síðustu ár og þegar hægist á, og fólk getur ekki lengur keypt sér bíla og flatsjónvörp þá er allt í einu komin kreppa. Fólk sem hefur spennt bogann það mikið að þegar það kemur örlítil niðursveifla að þá getur það engan vegin staðið undir afborgunum af bílum, tækjum, húsnæði og öðru - er það kreppunni að kenna?

Þitt lið á EM

Knattspyrna — Jói on júní 2, 2008 at 16:13

Ég hef pælt aðeins í því hvaða lið ég ætla að styðja á EM í sumar og hef tekið afstöðu: Frakkland, bestu þjóð Evrópu.

Þau lið sem ég var að gæla við að styðja en náðu ekki efsta sætinu voru t.d.:
Portúgal: Ronaldo er farinn að fara í taugarnar á mér vegna þess hversu óöruggur hann er alltaf um veru sína hjá United
Holland: Yfirleitt skemmtilegir en Nistelrooy og svipaðar týpur eru leiðinlegir. Mætti samt ganga vel.
Ítalía: Hef yfirleitt haldið með þeim en liðið er ekkert spes núna og þvílík spilling í gangi í boltanum hjá þeim (spillingarmál höfðu reyndar ekki áhrif á þá síðast).
Spánn: Æi, veit það ekki - jújú, þeim mætti alveg ganga vel.
Svíþjóð: Sonja er ættuð þaðan en Skandinavar hafa aldrei kunnað að spila knattspyrnu.

Hvað verður þitt lið í keppninni?

Frægðin kallar

Bækur, Ljósmyndun — Jói on júní 2, 2008 at 14:03

Fór inn í stærstu bókabúð London núna um helgina með Hjölla í eftirdragi og þar í ljósmyndadeildinni var ein bók áberandi, The Icelandic Lightroom Adventure en sú bók skartar nokkrum myndum eftir mig. Skrítið að fletta bók í svona stórri bókabúð sem inniheldur myndir eftir mig - eiginlega súrealískt.

George Jardine einn af aðalmönnunum hjá Adobe sendi mér tölvupóst fyrir nokkru og benti mér á dóm um bókina þar sem gagnrýnandi hjá CNET sem þekktur er fyrir að vera dómharður nefndi sérstaklega “The Bergmanesque Effect” (sem ein af uppskriftum mínum í bókinni var víst kölluð) jákvæða umsögn. Gaman að þessu og gaman að hafa fengið tækifæri að taka þátt í þessu.

Við Sonja verðum annars með grein í júlíblaði Útiveru og munum líklegast eiga forsíðumyndina.

Rock on!

Teikninámskeið

Almennt, Listir, Skóli — Jói on júní 1, 2008 at 06:29

Námskeiðið sem ég er á hérna hjá Escape Studios er að þjálfa okkur í að gefa persónum líf, þ.e. “Animation” eða kvikun eins og það kallast víst á íslensku. Við höfum síðustu vikurnar verið að gera ýmis verkefni og hef ég að ég held þegar sett 1-2 kvikmyndir hérna inn. Næstu þrjár vikurnar fara í það að gera lokaverkefni og þurftum við að velja okkur c.a. 10 sekúndna tal úr bíómynd og búa til þrívíddarteiknimynd í kringum talið, samt án þess að herma eftir myndinni.

Ég ætla að taka hina stórgóðu setningu úr Princess Bride þar sem aðalhetjan hittir morðingja föður síns og segir þetta fyrir bardagann: “My name is Indigo Montoya, you killed my father, prepare to die!”

Ég er með hugmynd að láta hnugginn, lítinn mann ganga inn í réttarsal. Þar situr dómarinn sem horfir reiðilega á manninn og gefur honum fingramerki  að hann sé dauðans matur með því að strjúka puttanum um háls sér. Þegar hinn meinti glæpamaður síðan er sestur stendur dómarinn og hallar sér fram og segir setninguna að ofan og ber hamrinum í borðið. Jafnvel gæti hann verið með gerviskegg, svona nef, skegg og gleraugu eins og hægt er að kaupa í partíbúðum og taki það af sér áður en hann segir setninguna.

Við munum leika atriðin á videovél í byrjun næstu viku til að hjálpa okkur við að kvika þetta - á þriðjudaginn verðum við allan daginn í leiklistar- eða látbragðsnámskeiði og þurfum að teikna upp myndina.

Talandi um teikningar þá fór allur föstudagurinn hjá okkur í að teikna lifandi módel. Það var virkilega skemmtilegt og mun ég örugglega reyna að bæta mig á þessu sviði og fara að teikna reglulega - hvað er meira töff en að mæta myndavélalaus í partí og henda bara í nokkrar myndir?

Ég var mjög slakur í teikningunni snemma um daginn eins og þessar myndir klárlega sýna framá:

Eftir að hafa meðtekið leiðbeiningar Pixar Jeffs um hvað beri að horfa á og hvernig maður eigi að nálgast það að teikna myndir fór að koma mynd á þetta hjá mér og kom ég eiginlega sjálfum mér á óvart þótt mér sé næstum alveg hætt að takast það. Nemendurnir í bekk Hjölla reyndar trúðu ekki að ég hefði teiknað þetta.

Hér er síðan mynd af listamanninum að skrifa þetta blogg:

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn