Indiana Jones 4 - Hauskúpa

Kvikmyndir — Jói on maí 28, 2008 at 14:09

Við Hjölli skelltum okkur í bíó í Shephards Bush nú um kvöldmatarleytið og sáum Indiana Jones. Aldrei þessu vant ætla ég að skella mér beint í stjörnugjöfina og setja hana í samhengi við gömlu myndirnar (allar stjörnur komnar frá mér og stjörnurnar eru frá einni til fimm):

IJ1: Raiders of the Lost Ark: 5 stjörnur
IJ2: Temple of Doom: 3 störnur
IJ3: Last Crusade: 4 stjörnur
IJ4: Crystal Scull: 1 stjarna

Já, eins og þið sáuð gaf ég myndinni bara eina stjörnu. Við Hjölli erum báðir mjög opnir fyrir ævintýramyndum og að hlutirnir séu settir í stílinn en þessi mynd hafði hvorki söguþráð né laut hún grunnlögmálum eðlisfræðinnar.  Myndin er algjört rugl frá A-Ö og mæli ég ekki með að fólk eldra en 12 ára sjái hana og myndi helst ekki mæla með að fólk yngra en 12 ára að sjá hana því nokkur atriði eru það óhugnanleg.

Okkur var eiginlega brugðið við myndina því hún er það léleg - okkur hafði verið tjáð fyrirfram að myndin væri slæm og höfðum við því ekki miklar væntingar en guð minn góður hvað hún skaut langt undir þær lágmarkskröfur sem við setjum um myndir. Þeir þykjast hafa verið 12 ár (eða voru það 16) við að finna rétta handritið og söguþráð þannig að ég skil hvorki upp né niður því þeir þurftu að lenda á þessari hörmung. Myndin er skammarleg og móðgun við áhorfendur, punktur og prik. Peningagræðgi Hollywood hefur náð nýjum hæðum eða lægðum!

Ford er sæmilegur en allir aðrir leikarar myndarinnar eru leiðinlegir og pirrandi og engin ástæða að telja þá upp - skoðið bara leikaralistann (ég meina það, það eru allir aðrir leikarar hræðilegir).

Sum atriði eru það fáránleg að þau láta myndir eins og Spiderman detta í sama flokk og Schindlers List.

Til hamingju George Lucas og Steven Spielberg, þið eruð búnir að eyðileggja þessa mögnuðu trílógíu … ég vil fá æsku mína til baka helvítis fíflin ykkar!

Það á að taka pörupiltana Grjóna og Stebba og flengja þá … Hjölli er búinn að bjóðast til að gera það.

Ég ætla ekki að eyða fleiri orðum í þessa hörmung og gef þessari mynd eina stjörnu - Hjölli vill gefa henni hauskúpur.

Siggaáskorun

Almennt — Jói on maí 28, 2008 at 14:09

Við skorum á Sigga að heimsækja okkur aftur til London. Ef hann lætur verða af því skulum við bjóða honum upp á Tan (sprautubrúnku) í Tansprautubúð sem er við hliðina á rottuholunni okkar.

Krabbinn

Skóli — Jói on maí 28, 2008 at 04:10

Krabbi: Þú þarft ekki fara á námskeið til að að læra heilan helling. Þú sogar í þig umhverfið, og áður en þú veist ertu orðinn einn af þeim sem vita og kunna allt.

Það kemur nú ekkert á óvart hérna nema kannski þetta með námskeiðið - á ég þá bara að hætta og fara aftur til Íslands?

Gallabuxur

Almennt — Jói on maí 27, 2008 at 04:12

J: Hvernig líst þér á nýju gallabuxurnar mínar?
H: Þær eru allt í lagi.
J: Jájá, þú mátt alveg kaupa þér svona buxur ef þú vilt.
H: Neiii, ég ætla frekar að kaupa mér svona ljósar sprittupplitaðar gallabuxur, svona vatnsupplitaðar.
J: Nú, er það að koma aftur í tísku?
H: Nei, mér hefur bara alltaf fundist það flott.

Autodesk Maya

3D — Jói on maí 26, 2008 at 16:24

Margir eru forvitnir um það hvernig hugbúnaðurinn sem við erum að vinna á hérna úti lítur út (ég er reyndar að ljúga, það er enginn forvitinn um það en ég ætla samt að segja ykkur frá honum). Autodesk Maya er lang, lang, lang (var ég búinn að segja lang?) flóknasti hugbúnaður sem ég hef komist í kast við og er af ýmsu að taka. Ég velti því fyrir mér hvort Maya sé kannski flóknasti hugbúnaður sem er á almennum markaði í heiminum. Forritið getur nánast allt en maður þarf að vinna fyrir því, hugbúnaðurinn er ekkert mjög notendavænn. Ástæðan fyrir því að Maya er orðinn standard í kvikmyndaheiminum við gerð tæknibrellna og teiknimynda er sú að hann er gríðarlega opinn og kvikmyndaver geta aðlagað hann alveg að sínum þörfum og bætt við hann eins og þörf er á. Á móti kemur er hann mjög hrár og er ekkert verið að reyna að fela eðlis- og stærðfræði fyrir mönnum, þ.e. þetta er ekki tól sérstaklega búið til fyrir listamenn. Í venjulegum forritum eru uppi í valslánni svona 8-10 fellivalmyndir, yfirleitt ekki meira en það. Í Maya eru 6 x 15 fellivalmyndir (maður þarf að velja hvaða sett maður horfir á) og er hvert fellival fullt af mismunandi aðgerðum og skipunum alveg niður skjáinn. Nánast hver aðgerð (sem eru sennilega nokkur hundruð) kallar síðan fram glugga þar sem hægt er að setja inn alla hugsanlega parametra með aðgerðinni. Þetta er “skull-crushing” flókinn hugbúnaður.

Animation (eða Kvikun) er síðan sér kapítuli út af fyrir sig. Það eru flestir sammála um það að þetta er erfiðara en menn gerðu sér grein fyrir. Maður þarf að hugsa um hvert liðamót í líkamanum, t.d. vinstri olnboginn getur færst í þrjár höfuðáttir (X, Y, Z) og einnig snúist í þessar þrjár áttir. Þegar maður færir ein liðamót hefur það áhrif á það sem tengist og því erfitt að láta þetta allt spila saman. Að taka þetta upp á næsta stig, þ.e. að þetta séu eðlilegar hreyfingar, hönd færist í mjúkri færslu og hægist á endanum, og persónan líti út eins og manneskja er erfitt, mjög erfitt.

Svona lítur dæmigert viðmót út í kerfinu:

Jæja, nóg af þessu leiðindabloggi mfgas.

Morgunstund

Almennt — Jói on maí 23, 2008 at 00:51

H:Góðan daginn, hvað syngur í þér í dag?”
J:
“Þegiðu bara!”
H: “Já, gaman að heyra.”

Þrívíddarmyndband

3D — Jói on maí 21, 2008 at 06:00

Svo fólk viti svona nokkurn vegin hvað ég er að brasa núna við hjá Escape þá var ég að vinna þetta video í gærkvöldi og skilaði því í morgun. Pixar gaurinn virtist nokkuð hrifinn af sögunni og tímasetningum en sagði að það þyrfti að vinna meira í litlu hreyfingunum, þ.e. puttar og tær og slíkt sem ég vissi af.
Hann sagði mér endilega að vinna þetta meira og klára þetta því þetta væri gott fyrir “show-reel”.

Útlitið á að vera svona hrátt og berrasað því þannig getur maður best skoðað hreyfingar og slíkt án þess að annað flækist fyrir.

Enska útgáfan af Eldklerk ™

3D, Kvikmyndir, Listir, Skóli — Jói on maí 21, 2008 at 04:27

Gary skólabróðir minn hérna í Escape á margt sameiginlegt með mér. Hann er ekki bara fjallmyndalegur og skarpari í hugsun heldur valdi hann nákvæmlega sömu kúrsa og ég svo við höfum því verið í sama bekk þessi tvö námskeið. Við ákváðum síðan báðir að taka aukaviku hérna og taka Renderman námskeið eftir námskeiðið. Hann er með sömu pælingar og ég (og Hjölli) hvað hann vill gera eftir námskeiðið, þ.e. gera eitthvað sjálfur frekar en að fara að vinna beint við þetta. Hann var einnig forritari á árum áður en hafði vit á því að fara út í eitthvað annað en það fyrir nokkrum árum síðan.

Það nýjasta sem er eins hjá okkur er að við í bekknum eigum að velja atriði úr einhverri bíómynd (hvað ætli það séu margar bíómyndir til og hversu mörg 10 sekúndna atriði eru í hverri bíómynd?) og við komumst að því í morgun að við völdum nákvæmlega sömu myndina og eikki bara það, sama atriðið. Fáránleg tilviljun.

Þetta er talbúturinn sem við völdum báðir, úr myndinni Princess Bride: Hljóðbútur.

Ég er að spá í að gera eitthvað öðruvísi með þetta, t.d. láta mann ganga fyrir framan dómara sem horfir illilega á hann - þegar maðurinn hefur sest rífur dómarinn skeggið af sér (greinilega platskegg) og segir setninguna í sömu andrá og hann slær niður hamrinum (aðrar hugmyndir vel þegnar).

Gary sagði að hann ætti íslenskan tvífara og mælti með því að ég færi bara út í að spila póker eins og hann, hlýt að vera góður í því.

Lokaverkefni hjá Escape Studios

3D, Skóli — Jói on maí 20, 2008 at 02:26

Ég þarf að velja mér 10 sekúndna talbút úr bíómynd og búa til þrívíddarmynd af manni sem er að segja viðkomandi setningar úr myndinni. Er einhver með hugmynd um hvaða brot ég ætti að taka? Sendið mér endilega hugmyndir.

Eina hugmyndin sem ég er kominn með er Bobby DeNiro úr Taxi Driver: “Talking to me? I don’t see anybody else here!”. Vandamálið er að það þarf að taka tal úr mynd og setja það í annað samhengi, þ.e. ekki herma eftir bíómyndinni. Hugmynd væri að láta gamla og úrilla ömmu eða afa sem er með slæma heyrn segja þetta við barnabarnið. Þetta er ekki nægilega góð hugmynd þannig að ég óska eftir góðum hugmyndum.

Frægt fólk

Ferðalög, Tónlist — Jói on maí 19, 2008 at 16:08

Kollegi minn hann Egill Helgason (við erum báðir bloggarar og lífskúnstnerar þannig að við hljótum að vera kollegar) hefur farið mikinn í að segja frá frægu fólki sem hann sér í sínum fjöldamörgu ferðalögum. Ég er ekki minni maður (já, Indverskur matur er fitandi, mjög fitandi) og ætla því að vera með svona “name-dropping” eins og hann. Við Sonja kíktum á Portabello markaðinn í Notting Hill til að kaupa 95 ára gamlan Kímónó sem hún hyggst klæðast á tyllidögum. Þar var frægur breskur sjónvarpsantíkmaður með fólki að hjálpa þeim að velja gamla muni og allt var þetta tekið upp. Ég þekki ekki nafnið á þættinum þannig að fólk verður bara að spyrja Google.

Seinna um daginn sáum við annan frægan kappa sem er öllu merkilegri. Við settumst inn á veitingastað nálagt Holland Park til að fá okkur síðbúinn hádegismat á sunnudegi. Þegar við vorum nýsest arkaði kunnuglegur náungi inn á staðinn, leit óþolinmóður í kringum sig og fór síðan aftur út - ég rétt náði að benda Sonju á hann. Nokkrum mínútum síðar kom hann aftur inn með c.a. 7 ára gamlan pilt og settust þeir við næsta borð. Móðirin, dökkleit kona kom nokkrum mínútum síðar og settist hjá þeim.
Þau voru þarna á næsta borði á meðan við snæddum matinn og mælti kappinn ekki orð af munni allan þennan tíma, var eitthvað að dunda sér við að senda smáskilaboð og horfa fýlulega fram fyrir sig. Konan var hin viðkunnalegasta, lék við strákinn og skiptu þau sér ekki mikið af Ian Brown. Þeir sem þekkja hann ekki þá var hann í hinni goðsagnakenndu hljómsveit Stone Roses og hefur auk þess sungið með hljómsveitum eins og Uncle o.flr.
Hann er mikill rebell eins og ég, var t.d. hent í steininn í 4 mánuði hér um árið fyrir að hóta flugfreyju að skera af henni hendurnar með plasthnífapörum. Í kjölfarið var eitthvað um veggjakrot einhverra húmorista í Manchester með “Free Ian Brown”. Hann var mestan þennan tíma í Strangeways fangelsinu sem Smiths platan “Strangeways, here we come” vísaði í.

Ég var bara 90% viss um að þetta væri hann þegar ég sá hann og fletti honum því upp á netinu og komst að því að hann á Mexíkanska konu, einn son og býr í Holland Park sem var næsta gata við þá sem við vorum að snæða þannig að þetta getur ekki hafa verið annar en hann.

Hann styður Manchester United svo ég geri ráð fyrir að það að ég hafi séð hann boði sigur í Evrópukeppninni á miðvikudaginn á móti Chel$ki.

Egill Helgason minn rass.

“I wonna be adored”.

Mörg orð

Almennt, Ferðalög — Jói on maí 19, 2008 at 02:06

Ég sagði þessa setningu við Hjölla áðan sem segir meira en mörg orð:

“Ég þarf að skjótast til Íslands á föstudaginn og kem aftur heim á mánudaginn.”

Helsta áhyggjuefni fólks í kringum okkur í sambandi við okkur Hjölla virðist vera að við munum ekki geta flutt aftur heim því við höfum það of gott hérna í London … kannski svarar setningin að ofan einhverju.

Þrívíddarskólinn þinn

3D, Bjór, Ferðalög, Knattspyrna, Skóli — Jói on maí 13, 2008 at 15:06

Við Hjölli höfum haft mikið að gera undanfarið þannig að lítið hefur heyrst af okkur hérna. Siggi var hjá okkur í nokkra daga og kom hann með okkur á lokahóf fyrra námskeiðsins á föstudaginn sem reyndist hið besta djamm, eins og maður segir stundum. Á laugardaginn sáum við Ebbsfleet krýnda bikarmeistara á mögnuðum Wembley leikvanginum í norður London.

Við höfum haft magnaða kennara á námskeiðunum fram að þessu og hjölli er núna með magnaðann kennara sem heitir Nick Savy. Sá kappi hefur unnið við margar stórmyndir og þætti og módelaði t.d. Batman fyrir áhættuatriðin í Batman Begins, Harry Potta, gerði Gorillaz videoið fræga og margt fleira. Ég er bara með Pixar gaurinn.
Allur skóladagurinn hjá Hjölla (og annarra nemenda með honum í bekk) fór í að finna myndir af nöktum karlmönnum á netinu að beiðni kennarans (ætli reynslan hafi ekki komið sér vel þar?).

Í dag skráði ég mig á aukanámskeið sem mun standa í viku þannig að ég verð einni viku lengur en ég ætlaði. Það er námskeið í Pixar Renderman sem ég hef áhuga á að skoða betur. Parísarferð okkar Sonju frestast því um viku.

Er ekki málið að láta nokkrar velvaldar myndir frá helginni tala sínu máli:


Dæmigert chill - hérna erum við á púbbnum við hliðina á íbúðinni okkar.


Siggi fúll með að Haukur sé að líkja honum við Fritzl (og þá er ég ekki að tala um köttinn).


Fyrir utan völlinn ásamt Andy (frá Sviss) og Graham tjalla sem eru með okkur á námskeiðinu.


Wembley leikfangurinn er svo sannarlega stórkostlegur.


Vinnufundur.


Öfugt ræs.


Oft eru ansi flottir bílar á götunum hérna í hverfinu hjá okkur.


Eins og sést er ég orðinn vel tannaður.


Minningarreitur Díönu í Hyde Park er ótrúlega þægilegur staður.


United enskir meistarar.

Við Hjölli gengum rétt áðan út af Pizzastað í fússi án þess að borða matinn okkar. Lifi meðvitaðir neytendur!

djónes

Almennt — Jói on maí 10, 2008 at 12:16

Indiana Jones IV er mikið auglýst hérna á strætóum sem varð til þess að mér datt eftirfarandi gáta í hug:

Hvað eiga Indiana Jones og Dr. Gunni sameiginlegt?

Svar: Þeir eru báðir með doktorsgráðu.

Lokaverkefni lokið

Óflokkað — Jói on maí 8, 2008 at 09:50

Jæja, þá er maður búinn að klára verkefnið og allt kvöldið framundan þannig að ég kom sjálfum mér á óvart með því að þurfa ekki að taka “all-nighter” fyrir skil (deadline er kl. 11 í fyrramálið). Hjölli er líka búinn og kom hann mér einnig á óvart.

Hérna er lokaútgáfan:

Núna erum við Hjölli á leiðinni á Paddington barinn okkar en þar hefur Sigurður boðið okkur á bjórfund og er Haukur einnig viðstaddur.

Ciao bella!

Næsta síða »
This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn