Ekki er allt sem sýnist

Almennt — Jói on febrúar 27, 2008 at 14:39

Við fengum okkur litla kanínu sem var hugsuð sem kærasta Púka fyrir 2-3 mánuðum síðan. Hún var nefnd Píla og er óskup sæt og góð.

Í gær fór að bera á undarlegu hegðunarmynstri í samskiptum Púka og Pílu sem fellst í því að Píla stekkur aftaná Púka og hamast það með taktföstum hreyfingum Púka til lítillar gleði og aðallega ama. Þetta endar í slagsmálum þar sem þau snúast í hringi, Píla reynir að komast aftaná og dúndra Púka en hann reynir að verja sig enda töluvert stærri.

Sonja tók Pílu upp í miðjum atganginum og sagði: “Þetta er strákur!”. Núna lítur út fyrir að við þurfum að finna karlmannsheiti á Pílu, einhverjar hugmyndir?

Öðru hverju í nótt heyrðist atgangur í búrinu þeirra sem ég reyndi að hugsa ekki um - vorkenndi Púka en vonandi nær hann að lifa af 3 mánuði í viðbót þangað til Píla verður geldur.

Svefn

Almennt — Jói on febrúar 23, 2008 at 18:33

Núna ligg ég uppi í rúmi og horfi á bíómynd um leturgerðina Helvetica ásamt því að vera búinn að taka inn svefntöflu. Ef ég sofna ekki núna þá sofna ég líklegast aldrei.

Þynnkan þín

Almennt — Jói on febrúar 23, 2008 at 16:22

Það er svo merkilegt með mig að þegar ég fer á fyllirí á sunnudögum þá verð ég ekki þunnur fyrr en á mánudaginn eftir. Á sunnudeginum er ég veikur, mánudeginum þunnur, þriðjudeginum með timburmenn, miðvikudeginum slappur en á fimmtudegi er ég eins og nýsleginn túskildingur, til í allt.

Sköpunarsögur - ritdómur

Bækur — Jói on febrúar 18, 2008 at 10:01

SköpunarsögurÉg sá þessa bók á útsölu fyrir nokkru síðan og hún vakti áhuga minn því oft er skemmtilegt að lesa svona bækur í samtalsformi ásamt því að hvernig rithöfundar vinna finnst mér áhugavert.

Bókin er öll hin glæsilegasta í útliti, bæði vel uppsett og frábærar ljósmyndir prýða bókina. Kristinn Ingvason sér um myndatöku en hann er talinn einn af fremstu “portrait” ljósmyndurum landsins og eftir að hafa séð myndirnar í þessari bók þá skilur maður af hverju. Hann leitast við að ná myndum af fólkinu við vinnu sína þannig að vinnuaðstaða og nánasta nágrenni skili sér á myndunum og eru þær margar hrein listaverk og þá eru myndirnar af Elíasi Mar fremstar meðal jafningja þar sem hann situr í dimmri blokkaríbúð sinni með svartar gardínur fyrir gluggum.

Það tók Pétur Blöndal víst um 7 ár að vinna þessa bók og eru tveir af 12 viðmælendum hans horfnir yfir móðuna miklu. Hann undirbýr hvert viðtal greinilega mjög vel, les nánast allt sem hefur komið frá viðkomandi rithöfundi á prenti og vísar oft í setningar eða ljóðastúfa í viðtölum sínum sem gefur þeim væntanlega meiri dýpt. Persónulega er ég það illa lesinn að ég var smávegis úti á túni þegar hann var komin svona djúpt í pælingar við höfunda en maður hefur bara gott af því.

Viðtölin eru misjafnlega skemmtileg og fannst mér samtölin við Elías Mar, Sjón og Guðrún Helgadóttir standa upp úr. Sérstaklega var Elías Mar hreinskilinn og maður sem lætur greinilega allt flakka.

Þar sem viðtöl voru misjöfn og ég kannski ekki nógu skólaður til að meta dýpri pælingar bókarinnar gef ég henni eftirfarandi stjörnugjöf.

3 stjörnur af 5 mögulegum

Ljóð

Almennt — Jói on febrúar 14, 2008 at 08:04

berja getur berja kann
sagði konan við hann
átti þar við sinn mann
sem hún á barnum fann

Ljóð samið til höfuðs Sigurðs Óla

Af tíma og tímaleysi

Almennt — Jói on febrúar 13, 2008 at 13:14

Það er ákaflega mikið hjá mér að gera í frítímum ef það má kalla þá svo þessa dagana. Hérna eru nokkur verkefni sem berjast um minn litla tíma:

1. Aukavinna.
2. Endurvinna texta frá Indlandsferðinni.
3. Flokkun á myndum frá ferðinni.
4. Læra á Indesign.
5. Lestur nokkurra bóka sem ég hef sankað að mér.
6. Læra á Maya.
7. Ýmislegt annað sem ég er að stúdera eins og jarðakaup, útprentanir, klára allt í íbúðinni o.flr., o.flr.

Hvert af þessum verkefnum (nema kannski nr. 5) er gríðarlega viðamikið þannig að tími minn dugar varla eða jafnvel alls ekki.

Kanínutékki

Almennt — Jói on febrúar 13, 2008 at 04:06

Ég fann lítinn blaðsnepil á gólfinu fyrir framan kanínubúrið og var það litla sem sást á bútnum kunnuglegt - þetta var ávísun. Eina ávísunin sem ég mundi eftir hafði komið nokkrum dögum áður upp 18þ krónur sem var endurgreiðsla vegna trygginga. Ég hafði sett hana á lítið borð skammt frá þeim stað þar sem hún fannst og meint brot átti sér stað.
Ég fór með hana í Sjóvá áðan og afgreiðslukonan hló dátt yfir óförum mínum en gekkst að því að leggja upphæðina inn á reikning minn.

Jörð

Húsnæði — Jói on febrúar 12, 2008 at 13:15

Ég hef verið í húsnæðispælingum undanfarið. Ekki það að ég sé óánægður með núverandi húsnæði, þvert á móti er ég mjög ánægður með það og mun líklegast eiga þessa íbúð lengi.

Pælingar mínar lúta að því að kaupa á einhverjum tímapunkti landspildu einhverstaðar á landinu og reisa þar fallegt hús þar sem hægt er að dvelja bæði veturs og sumars og eiga þá einnig litla íbúð í bænum og geta dvalið á báðum stöðum.

Kröfur mínar um jörðina eru þess háttaðar að ég mun seint láta þennan draum rætast. Kröfurnar eru t.d.:

1. Eignin þarf að vera langt frá þjóðvegum og helst á stað sem nánast enginn kemur til.
2. Fjarlægð frá borginni má helst ekki vera of mikil en ég set það þó ekki fyrir mig, mætti þessvegna vera á vestfjörðum eða á austurlandi.
3. Landspildan verður að hafa fallega sjávarsýn og helst ekki sjást byggð nálægt.
4. Nánasta umhverfi þarf að vera fallegt ásamt mögulega að gróðursetja tré og slíkt.
5. Nettenging verður að vera góð svo ég geti sinnt vinnu minni frá staðnum.
6. Ég þarf að geta reist stöndugt steinhús á svæðinu með stórri og glæsilegri stofu með stórum gluggum sem ná frá lofti til gólfs með góðu útsýni.

Aðrar kröfur verða ekki taldar upp hérna.

Ég hef örðu hvoru verið að skoða á vefnum eignir og sá ég t.d. eyju á Breiðafirði til sölu með uppsett verð 40 millur en bæði er verðið hátt og gríðarlega erfitt og dýrt að byggja húsnæði á slíkum stað.

Sex bækur

Bækur, Listir — Jói on febrúar 11, 2008 at 13:35

Ég gerði mér ferð niður í fornbókabúðina á Klapparstíg eftir vinnu í dag. Mér finnst nokkuð magnað að ganga þarna um búðina og anda að sér lykt af gömlum bókum og stemmingu sem fylgir svona búðum. Ég skoðaði ævisögur Íslendinga og þá sérstaklega listamanna sem ég hef fengið einhvern óskiljanlegan áhuga á. Ég t.d. hef keypt mér þrjár bækur undanfarið, Til Fundar við Skáldið, Sköpunarsögur og Sjálfstætt fólk og klárað eina af þeim.

Ég spurðist fyrir um áritaðar bækur eftir Laxness en það er lítið af þeim í umferð og er ástæðan helst sú að hann gerði lítið af því að árita, nokkrar slíkar bækur eru til en þær eru flestar í eigu útlendinga því Halldór gerði eitthvað af því að senda út og gefa bækur erlendum vinum sínum.
Það var reyndar maður þarna á vappi sem ég veit ekki hvað heitir sem á mesta úrval af árituðum bókum eftir Nóbelskáldið sem búðareigandinn vissi af en ég var ekkert að falast eftir einni af þeim. Lítið var til af bókum eftir hann í búðinni en einhverjar fyrstu útgáfur sem gætu verið góð kaup.

Ég heyrði búðareigandann segja frá því að góðborgari hafi komið í búðina fyrr um daginn og beðið um að fá 6 bækur að láni hjá honum sem hann ætlaði að taka með sér á eyðieyju eftir örfáa daga og átti hann sjálfur að velja fyrir hann bækur og ekki segja honum hvaða bækur það yrðu. Hann var samt að spá í að velja eina eftir Laxness.

Hvaða bækur ætti maður annars að taka með sér á eyðieyju?

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn