Annað nýrað

Almennt — Jói on desember 23, 2007 at 17:48

Við Sonja fórum í nokkrar búðir í fyrradag í leit að lágum látlausum skenk í stofuna okkar.

Eftir að hafa kíkt í nokkrar búðir fundum við loksins skenk sem við fyrstu sýn virtist hinn fullkomni skenkur fyrir okkur. Hvítur, látlaus og mjög einfaldur. Við kíktum á verðmiðann: “746.000- kr.”

Við supum hveljur og hröðuðum okkur út úr búðinni því við höfðum ekki smurt á okkur rassgatið.

Á leiðinni út stöðvaði peningagráðugi búðareigandinn okkur:

“Get ég aðstoðað ykkur?”
“Ja, ef þú getur boðið okkur skenkinn á rúmlega hálfvirði!”
svaraði Sonja.
“Þið getið tekið þetta á þriggja ára rað!” sagði hann eins og það væri lausn allra vandamála.
Þetta verður þá komið úr tísku þegar við höfum loks borgað þetta!”.
“Neineinei, þetta er svona eins og Rolls-Royce, alltaf í tísku!”
“Já er það?”
svaraði ég hvumsa.
“Já, þetta er svo mikið ‘design’!” svaraði hann og brosti falskt.

Við komumst út og héldum þétt um þunn peningaveskin okkar og fórum í Epal …

Jólakveðjur

Almennt — Jói on desember 23, 2007 at 17:26

Jólakveðjurnar eru órjúfanlegur hluti jólanna fyrir mörgum, t.d. móður minni.

Í dag vorum við Sonja á leið frá Blönduósi með ömmu Sonju í farteskinu og þá kom kveðja sem við gátum öll þrjú hlegið að, hún byrjaði svona: “Við sendum dísætar jólakveðjur ….”.

Þetta fellur undir sama flokk og skemmtileg grein fjallaði um í fréttablaðinu nýlega.  Þar sagði frá því að fólk er hætt að eignast börn, núna eignast fólk aðeins prinsa, prinsessur eða það versta og ég óska engu fólki slík örlög: “Bumbubúa”.

Ullabjakk! 

Nýtt blogg

Almennt — Jói on desember 21, 2007 at 17:01

Komið þið sæl.  Móðir mín var í öngum sínum þegar ferðasagan rann sitt skeið á enda og nánast skipaði mér að opna strax annað blogg og ekki seinna en strax, sem ég að sjálfsögðu hlíði.

Hérna ætla ég að skrifa um það sem er ofarlega í huga mér og hef löngun til að koma á framfæri - það verður sennilegast minna: “Í dag fór ég á fætur og síðan í vinnuna …..”

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn