Samtal á fimmtudagskvöldi

Almennt — Jói on febrúar 4, 2010 at 13:49

Ég var að gramsa í skúffunni þar sem Fig-Rolls kexið er vanalega geymt:

Sonja: “Hvað ertu að gera?”
Jói: “Ég er svangur … er ekki til eitthvað kex?”
Sonja: “Fáðu þér bara epli!”
Jói: “Mig langar ekki í epli”
Sonja: “Nú, þá ertu ekki svangur!”
Jói: “Heyrðu, ég fór að heiman á sínum tíma til að losna við svona athugasemdir!”
Sonja: “Ég vil ekki að Bjartur heyri svona, maður á að borða hollan mat!”

Það að eignast barn er kannski enginn barnaleikur eftir allt saman.

Að granda flugvélum

Almennt — Jói on janúar 21, 2010 at 03:51

Ég keyrði systur mína og 12 vetra gamlan son hennar út á alþjóðaflugvöllinn í Keflavík í gær. Sonurinn var eitthvað smeykur við að vélinni yrði grandað yfir Atlantshafinu akkúrat þegar hann væri í henni. Við tveir ræddum þetta aðeins og samtalið var svona:

“Ég er viss um að einhverjir Nígeríusvindlarar sprengi vélina á leiðinni til Köben!” sagði hann og virtist áhyggjufullur.
“Neinei, það er mjög öruggt að fljúga í dag, það eru þúsundir vélar í loftinu akkúrat núna og afar sjaldgæft að flugvél farist.” svaraði ég til að slá á áhyggjurnar.
“En hún gæti alveg hrapað.” sagði hann til að slá öll vopn úr höndum mér.
“Ja, það eru margfalt meiri líkur á því að við lendum í bílslysi á leiðinni út á völl heldur en að lenda í bílslysi.” sagði ég.

Hann horfði í kringum sig og þrýsti sér niður í sætið og virtist allt í einu orðinn bílhræddur í ofanálag.

“Það eru meiri líkur á því að þú vinnir lottóið á laugardaginn heldur en að þú lendir í flugslysi!” bætti ég við.

Það var þögn í bílnum á meðan hann var að melta þetta allt og nokkrum mínútum síðar ávarpaði hann móður sína:

“Mamma, eigum við að kaupa lottómiða á flugvellinum?”

Alliance Française

Almennt — Jói on desember 27, 2009 at 02:37

Er þetta ekki bara málið, ég held það: Námskeið

Evrópa logar

Almennt — Jói on nóvember 15, 2009 at 13:36

Ég fékk mér ágætis sunnudagslúr vegna hausverks og segi ég draumfarir mínar ekki sléttar. Mig dreymdi að Evrópa var logaði í ófriði og var ástandið síst betra en í heimstyrjöldinni síðari. Íslendingar vildu vera með í partý-inu enda erum við rómaðir fyrir að vera með minnimáttarkennd þegar kemur að hreyfingum þjóðanna. Þar sem Ísland er tæknilega séð gjaldþrota höfðum við ekki efni á að taka þátt - eftir nákvæma útreikninga prófessors í Háskólanum kom í ljós að við höfðum í mesta lagi efni á einni vélbyssu, en þyrftum þó að fá lán frá henni frá annarri hvorri fylkingunni sem bárust á banaspjótum. Helstu broddborgarar og stjórnmálamenn komu saman til að ræða málið og varð niðurstaðan einróma, að senda Björn Bjarnason á vesturvígstöðvarnar vopnaður skuldsettri vélbyssunni. Menn voru þó sammála því að þar sem hann væri allur her Íslendinga mætti hann velja sér herbúning úr leynifataskáp sínum. Þar sem það var miður vetur þyrfti hann þó að klæða sig betur en Brús Willís í Dæ Hard.
Þjóðin stóð einróma á bakvið þessa ákvörðun.
Á svipuðum tíma fékk íslenska þjóðin þau tilmæli frá hinni stóru Evrópu að slökkva á friðarljósinu því það var vel áberandi frá vesturvígstöðvunum að næturlagi og hefði dræm áhrif á baráttuanda hermanna.

Þegar ég vaknaði var hausverkurinn farinn.

Klerkur kaupir Range-Rover

Almennt, Bílar — Jói on október 26, 2009 at 00:04

Ég var nýbúinn að kaupa mér Range-Rover. Ég keyrði með vinnufélagana um austurborg Reykjavíkur en gekk illa að halda bílnum frá veggjum og grindverkum sökum lélegs bílstjóra og of mikils krafts. Um morguninn þegar ég vaknaði var ég með hin klassísku orð verðbréfahruns á vörunum: “Selja! Selja! Selja!”.

Bíllinn var grænn.

Ungdómur

Almennt — Jói on október 12, 2009 at 13:47

Ég snæddi kvöldverð með 12 ára frænda mínum heima hjá móður minni í gær. Yfir matnum lét hann gamminn geysa um það hvað honum langar að gera núna og í framtíðinni. Það sem þarf kom fram var eftirfarandi:

  • Hann langar í mótorhjól.
  • Hann langar að fá sér tattú
  • Hann langar að hætta í skóla
  • Hann langar að fá vinnu í Bónus

Þegar ég var á hans aldri vissi ég ekkert hvað ég vildi gera eða vera. Ég verð að gefa ungdómnum í dag prik fyrir að hafa sterka framtíðarsýn og vera með skýr markmið. Ægir frændi rokkar!

Rétttrúnaður

Almennt — Jói on júlí 24, 2009 at 06:44

Ég er byrjaður að ala Gugg upp í því að halda með Liverpool og styðja Sjálfstæðisflokkinn. Ég er að skapa grunn fyrir snörp og hressileg skoðanaskipti á heimilinu þegar hann eldist.

Leiðinlegir frasar

Almennt — Jói on nóvember 7, 2008 at 15:45

Þó ég sé manna jákvæðastur þá er best að færa nokkur orð og frasa til bókar sem mér leiðast:

Kósíkvöld
Bumbubúi
Rómó
Drottningar (í samhengi um fallegt kvennfólk á djamminu)
Heildarlausn
Guðlaugur Þór
Sigurður Kári
“Heyrðu” í upphafi svars
“Oh, my god” og “Oh, my gosh”

Ég mælist til þess að þeir “karlmenn” sem nota eitthvað að fyrstu þrem orðunum í daglegu tali verði vanaðir … nei, tek það til baka, það er pottþétt búið að því.

Saga sendibílstjórans

Almennt — Jói on nóvember 6, 2008 at 17:12

Sendibílstjóri sem ég hitti fyrr í kvöld sagði mér þessa reynslusögu úr bransanum:

Stundum þegar fólk er að flytja búslóðir er það alls ekkert búið að klára að pakka þegar hann mætir gallvaskur á staðinn til að flytja og þarf hann oft að hjálpa við síðustu skrefin í pökkun. Eitt skiptið mætti hann á stað til að flytja búslóð og bjó þar maður einn og var haugadrukkinn og auk þess ekki byrjaður að pakka. Hann spurði sendibílstjórann hvort hann gæti bara ekki pakkað fyrir sig og flutt síðan dótið, og svaraði bílstjórinn því til að það tæki hann nú alveg heilan sólarhring, sem sá drukkni samþykkti. Hann fór og skildi sendibílstjórann eftir við innpökkunina en kom öðru hvoru yfir daginn í leigubíl til að athuga hvernig honum gengi við verkið. Menn eru mis léttir á því.

Pakk

Almennt — Jói on september 29, 2008 at 13:43

Það eru stórir hlutir að gerast í fjármálunum hérna á Íslandi sem annarsstaðar og margir sem munu verða undir.

Í Kastljósi áðan var tekið viðtal við nokkra viðskiptavini Glitnis fyrir utan bankann í dag. Einn sem rætt var við var kona um 30 ára sem var í miklu uppnámi. Sagðist hún aldrei hafa orðið fyrir jafn miklu sjokki og þegar hún heyrði fréttirnar í dag. Hún bætti því við að fréttirnar um 11. september hérna um árið hefðu ekki einu sinni haft jafn mikil áhrif á hana. Þetta finnst mér nokkuð dæmigert um hugsanaganginn í dag - hversu peningar eru farinir að skipta miklu máli hjá okkur. Ég ætla rétt að vona að hún hafi átt mjög mikinn pening í bankanum svo hann sé mikilvægari en 3000 mannslíf sem töpuðust 11. september.

Djöfulsins pakk!

Ástandið í miðborginni um helgar

Almennt — Jói on ágúst 24, 2008 at 09:35

Á vefmiðlum í dag hef ég lesið um að ölvun hafi verið mikil í nótt á menningarnótt og íbúar í miðbænum kvarta yfir drykkjulátum. Hinsvegar virðist lögreglan nokkuð sátt með ástandið í nótt og segir það ekki hafa verið mikið verra en gengur og gerist um helgar.

Unnusta mín er í björgunarsveit og var í hópi hjálparsveitarmanna sem gekk með hópi lögreglumanna í nótt í gæslu. Hún átti ekki orð yfir það virðingaleysi og dónaskap sem stór hluti fólks sýndi lögreglunni í miðbænum. Gert var hróp af þeim stanslaust, þeir kallaðir aumingjar og margt mun verra. Glerflöskum var kastað í átt að þeim og allt gert til að ögra þeim og gera þeim starfið erfitt eða jafnvel ómögulegt. Þetta var svo algengt að lögreglan getur ekki annað gert en látið svona dólgslæti sem vind um eyru þjóta enda myndi hún þurfa að drusla hálfum miðbænum í fangaklefana ef þeir ætluðu að koma vitinu fyrir fólkið.

Eins voru mun alvarlegri atburðir í bænum, hópar af piltum gengu í skrokk á fólki ásamt öðrum slagsmálum en það flokkast sennilegast undir vikulega viðburði í bænum. Þetta er semsagt venjuleg helgi - hvernig eru slæmu helgarnar? Er þetta eitthvað sem við þurfum að sætta okkur við?

“Hvað er fokkings að helvítis löggunni … hún má ekki blamma hann niður, það eina sem hann gerði var að kalla hana fávita!” sagði ungur strákur við hópinn þegar lögreglan hafði reynt að róa vin viðkomandi niður í korter og þurfti á endanum að handtaka hann vegna framkomu hans. Merkilegt að fólk finnst eðlilegt að kalla lögregluna fávita.

“Það ætti að sæma alla lögreglumenn heiðursmerki eftir hverja vakt í miðbænum!” sagði hún þegar hún kom heim hálfvegis í sjokki yfir því hvernig fólk hegðar sér þegar það er að skemmta sér.

Tengdó er með það alveg á hreinu hvað veldur þessu: Hún segir að fyrir nokkrum árum hafi verið farið í herferð til að ung börn væru ekki hrædd við lögguna. Löggan mætti í leikskóla og niður á laugaveg þar sem hún söng og dansaði barnalög með börnunum. Þetta er sá árgangur sem er niðri í bæ um helgar … í staðinn fyrir að hræðast lögguna eins og fullorðnir frændur mínir fyrir vestan gera, þá hafa börnin misst alla virðingu fyrir löggæslumönnum.

Ég held reyndar að vandinn risti dýpra - ungt fólk í dag ber ekki virðingu fyrir neinu enda oft ekki uppalið!

Ætli eina lausnin á þessu sé ekki bara að hafa herskyldu, en þar sem við höfum ekki her láta fólk stunda löggæslustörf í eitt ár, t.d. þegar það nær 18 ári. Það myndi slá margar flugur í einu höggi, fólk myndi læra heraga, sjá með eigin edrú augum hvernig ástandið er í bænum, fengi smá snertingu af uppeldi og auka til muna fólk í löggæslustörfum. Eitthvað þarf a.m.k. að gera, þetta stefnir í óefni.

Eitt spaugilegt atriði átti sér stað um nóttina: Lögregluhópurinn var að fara yfir laugarveginn og beið eftir að bílaumferðin myndi staðnæmast og kemur þá ung stúlka aðvífandi og gengur rösklega út á götuna og stoppar umferðina. Bendir síðan lögreglunni að koma yfir með handabendingum eins og umferðalögregla myndi gera. Hópurinn gekk yfir götuna og þakkaði fyrir sig. Kannski erum það við sem ættum að þakka lögreglunni fyrir það erfiða og vanþákkláta starf sem þeir þurfa að inna af hendi af því að við kunnum ekki lengur að ala upp börnin okkar.

Ég læt fylgja með mynd sem ég tók af meistara Megas á tónleikum á menningarnótt en Megasukk voru frábærir í portinu bakvið veitingastaðinn Við Tjörnina.

100.000 gesturinn

Almennt — Jói on ágúst 5, 2008 at 04:16

Jæja, ég hef ákveðið að gefa 100.000 gestinum verðlaun sem verður ein pizza eins og gjarnan er gert á verri útvarspstöðvum.

100.000 gesturinn fær semsagt eina pizzu. Teljarinn er kominn upp í 3.204 þannig að þetta er æsispennandi. Koma svo fólk!

Kanína gefins

Almennt — Jói on júlí 24, 2008 at 14:26

Pílatus litli og Púka litla semur ekki, útséð með það. Við höfum því ákveðið að losa okkur við kvikindið. Hann er ótrúlega hress, um eins árs, geldur og óskup góður þegar hann er ekki í vondu skapi sem er þegar maður er að reka hann út úr herbergjum sem hann á ekki að vera í. Hann er svo hress að Sonja hefur talað um að hann sé hálfgerð sérsveitarkanína. Hann kom t.d. inn á bað um daginn þegar ég lá í baði og hoppaði upp og ofaní baðið en var fljótur uppúr aftur.

Ég þarf semsagt að senda hann í svæfingu nema ÞÚ takir hann að þér.

Ég læt hér fylgja mynd með svo það verði erfiðara fyrir fólk að taka hann ekki að sér. Koma svo, annars fær kanínan að finna fyrir því!

Fyrstu mánuðina sem við áttum Pílatus hét hann reyndar Píla því við fengum okkur hann sérstaklega til að vera kærasta Púka. Eftir 4 mánuði komumst við að því að hann var alls ekki stúlka heldur var hún hann, allt óhæfum starfsmanni dýrabúðarinnar við Kringluna að kenna. Rétt áður en hún var geldur var hann og Púki ekki góðir vinir, slógust mikið og fór það versnandi með hverjum deginum. Við þurftum að verða okkur úti um annað búr og getum núna ekki haft þá lausa á sama tíma því þá lenda þeir í harkalegum slagsmálum.

Stjörnuspá

Almennt — Jói on júlí 23, 2008 at 16:49

Stjörnuspá dagsins fyrir mig … áhugavert:

Hæfileikar þínir til að til að skipuleggja framtíðina erum töfrum líkastir. Áætlanir þínar eru svo stórar að þú ert ekki viss um að þú getir hrint þeim í framkvæmd.

Næsta síða »
This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn