Morgunstund á Indlandi

Sit hérna í nýja eldhúsinu okkar, sötra kaffi og bíð eftir að Sonja vakni. Læt sólina leika um andlit mitt og hugsa um sólina á Indlandi. Er að laga til reisubókina okkar úr Indlandsferðinni á útmánuðum 2007. Þegar ég vinn í þessum textum fer hugurinn að reika og ég ferðast aftur til Indlands andlega. Við það fæ ég einhvern innri frið og verð ákaflega hamingjusamur að hafa átt þess kost að fara í svona ferðalag - ferðalag sem við munum eflaust kalla ferðalag lífs okkar og sem hafði mikil áhrif á okkur bæði. Það að hafa tekið niður ferðasöguna var eitt það besta sem við gerðum því núna getum við skotist til Indlands hvenær sem okkur hugnast það án þess að borga fyrir það krónu né rúbís.
Hvað er betra en að sitja snemmmorguns í bæ á Indlandi með kaffibolla eða te á borðinu - horfa dreymandi yfir vatnið sem mistrið leikur um - nokkrir Indverjar baða sig, biðja bænir og söngur múslima í fjarska. Eru það ekki svona augnablik sem gefa lífinu líf?
2007 kemur aldrei aftur … sem er bæði gott og vont.

