Tónlistarpælingar
Ég er á kafi í tónlistarpælingum þessa dagana. Litli bróðir skilaði mér Kef Coda 9 hátölurum sem hann hefur verið með í láni ó nokkur ár. Þar sem við Sonja erum mikið við vinnuborðið í aukastofunni og hlustum oft saman á tónlist úr hátölurunum á tölvunni ákvað ég að taka skurk í þessum málum og gera þetta almennilegt.
Ég tengdi þessa hátalara við lítin T-Amp magnara sem ég átti en hann reyndist ekki nægilega kraftmikill til að “keyra” þessa stóru hátalara. Ég fór því í smá rannsóknarvinnu til að komast að því hvernig ég gæti fengið frábært hljóð úr tölvunni við þessa hátalara. Ég las mér aðeins til og spurðist fyrir á head-fi.org.
Niðurstaðan var sú að kaupa tvö tæki:
Glow Amp One magnara sem mun keyra hátalarana. Þetta er túbumagnari með mjúkt og gott “gamaldags” hljóð sem mér þykir skemmtilegt (hef reyndar ekki heyrt í honum ennþá, hann er á leið til landsins en samkvæmt rannsóknarvinnunni ætti hann að vera málið fyrir mig.
Tölvur eru með innbyggðan módul að breyta stafrænu hljóði yfir í “analogue” merki sem fer síðan út um tengið fyrir heyrnartólin. Þetta kallast DAC (digital-to-analogue) converter og er ekkert spes í tölvum ásamt því að heyrnartólstengið er yfirleitt ekkert spes. Menn hafa því verið að nota dac sem tengist við tölvuna með USB eða optical tengi. Ég ákvað því að kaupa útværann DAC til að ná fram sem bestu hljóði. Var tæki sem heitir V-DAC fyrir valinu.
Ég var einnig að uppgötva forum þar sem menn eins og ég sem eru mikið að pæla í tónlist og einnig góðum hljómgæðum bera saman bækur sínar og eru að ræða um það besta í tónlistinni. Nú þarf ég kannski að fara að ripa diskunum mínum aftur í betri gæðum, þ.e. 320b eða jafnvel lossless. Sjáum til hvað ég nenni að gera.

