Þvottadagur

Bjór, Knattspyrna, Listir, Skóli — Jói on júní 10, 2008 at 14:10

Það hefur lítið heyrst af okkur Hjölla hérna undanfarið og er það að hluta til vegna anna í skóla ásamt samkvæmislífi síðustu helgi. Skólinn gengur vel, Hjölli er reyndar ekki alveg sáttur með hvað hægt gengur í hans kennslu vegna þess að 1-2 nemendur eru seinni en aðrir en hann er samt að læra helling og það er það sem skiptir máli.

Ég er ekki aðeins að læra um animation í mínum bekk heldur hefur Jeff kennt okkur teikningu og það sem skiptir máli í leiklist. Við tókum heilan dag um daginn þar sem breskur leikhúsleikari kom, að nafni Richard Knight (http://mimethegap.com), og var með bekkin allan daginn að kenna okkur látbragðsleik og ýmislegt sem viðkemur leiklistinni. Allan daginn þufti maður að fara fyrir framan bekkinn hvað eftir annað og leika eða láta eins og kjáni og var þetta eins og heill dagur í samkvæmisleikjum. Í lokin höfðum við 10 mínútur til að semja leikrit í anda Commedie del’arte sem er tegund af leik þar sem allt er ýkt út úr korti og notast er við grímur til að túlka þekktar persónur úr þessu leikformi.
Það var frekar erfitt að takast á við þetta verð ég að játa en ætli stirðbusalegur og lokaður Íslendingaþurs hafi nú ekki bara gott af þessu? Ég held það bara.


Hérna vorum við í leik þar sem notast var við hvítar grímur og nemendur áttu að stilla sér upp eins og um fjölskyldumynd væri að ræða og reyna að túlka einn fjölskyldumeðlim án tals og restin af bekknum átti að giska á hvaða persóna þetta væri (ég ákvað að leika snobbaðann frænda).

Lokaverkefnið mitt mjakast sem felst í því að taka kvikmyndabút, eða tal úr kvikmynd réttara sagt, og setja það í nýjan búning í teiknimynd. Ég tók fyrir kafla úr Princess Bride og gleð þar sennilegast Halla vin minn ásamt því að ná að gleðja Búrkna líka með því að nota staðlaða grímu-með-gleraugu-nefi-og-yfirvaraskeggi grímu, sem hann hefur ákaflega gaman af. Ég set inn lokaútkomuna í lok næstu viku.

Við fórum í grillveislu til bekkjarfélaga Hjölla á laugardaginn sem er frá Sviss. Hann er að leigja lengst úti í rassgati og tók það okkur um klukkutíma að komast á staðinn. Eftir grillið fórum við á bar sem hann var búinn að sérvelja þarna í hverfinu og reyndist hann ansi fámennur. Eftir fyrri leikinn fórum við í annað hverfi þarna nálagt þar sem Graham, sem var þarna með okkur, gekk í háskóla á yngri árum og kynnti hann okkur fyrir helstu börum staðarins. Ágætt kvöld sem endaði nærri því illa þegar reiðhjólamaður hjólaði á Graham á fullri ferð þegar við vorum á leið heim en sem betur fer sluppu þeir með mikil meiðsli.

Læt nokkrar myndir fylgja ykkur til yndisauka:


Greham að búa til heimatilbúna hamborgara og gestgjafinn (vélaverkfræðingur en furðu heilbrigður að öðru leiti) spaugast við Hjölla.


Eitthvað verið að sprella þarna.


Setið úti í dæmigerðum enskum garði og beðið eftir borgurunum.


Fámennt en góðmennt á staðnum sem við horfðum á leikinn með Sviss.


Það er ekki nóg að drekka eintóman bjór, maður verður líka að fá næringu! Hérna erum við að fá okkur Esspresso.


Á leið heim seint um kvöldið.


Umvafinn fallegum svanasöng í Hyde Park á sunnudaginn.

Læt þetta duga í bili.

Þrívíddarskólinn þinn

3D, Bjór, Ferðalög, Knattspyrna, Skóli — Jói on maí 13, 2008 at 15:06

Við Hjölli höfum haft mikið að gera undanfarið þannig að lítið hefur heyrst af okkur hérna. Siggi var hjá okkur í nokkra daga og kom hann með okkur á lokahóf fyrra námskeiðsins á föstudaginn sem reyndist hið besta djamm, eins og maður segir stundum. Á laugardaginn sáum við Ebbsfleet krýnda bikarmeistara á mögnuðum Wembley leikvanginum í norður London.

Við höfum haft magnaða kennara á námskeiðunum fram að þessu og hjölli er núna með magnaðann kennara sem heitir Nick Savy. Sá kappi hefur unnið við margar stórmyndir og þætti og módelaði t.d. Batman fyrir áhættuatriðin í Batman Begins, Harry Potta, gerði Gorillaz videoið fræga og margt fleira. Ég er bara með Pixar gaurinn.
Allur skóladagurinn hjá Hjölla (og annarra nemenda með honum í bekk) fór í að finna myndir af nöktum karlmönnum á netinu að beiðni kennarans (ætli reynslan hafi ekki komið sér vel þar?).

Í dag skráði ég mig á aukanámskeið sem mun standa í viku þannig að ég verð einni viku lengur en ég ætlaði. Það er námskeið í Pixar Renderman sem ég hef áhuga á að skoða betur. Parísarferð okkar Sonju frestast því um viku.

Er ekki málið að láta nokkrar velvaldar myndir frá helginni tala sínu máli:


Dæmigert chill - hérna erum við á púbbnum við hliðina á íbúðinni okkar.


Siggi fúll með að Haukur sé að líkja honum við Fritzl (og þá er ég ekki að tala um köttinn).


Fyrir utan völlinn ásamt Andy (frá Sviss) og Graham tjalla sem eru með okkur á námskeiðinu.


Wembley leikfangurinn er svo sannarlega stórkostlegur.


Vinnufundur.


Öfugt ræs.


Oft eru ansi flottir bílar á götunum hérna í hverfinu hjá okkur.


Eins og sést er ég orðinn vel tannaður.


Minningarreitur Díönu í Hyde Park er ótrúlega þægilegur staður.


United enskir meistarar.

Við Hjölli gengum rétt áðan út af Pizzastað í fússi án þess að borða matinn okkar. Lifi meðvitaðir neytendur!

Gáfur og ekki gáfur

Bjór — Jói on apríl 23, 2008 at 14:10

J: Merkilegt hvað maður verður fáránlega gáfaður þegar maður er búinn með nokkra bjóra!
H: Já, það er rétt - ég er t.d. mun gáfaðri en þú núna því ég er búinn með fleiri bjóra.
J: Það er ekki rétt, þú þarft nú meira til en það - þarft a.m.k. heila Tequila flösku til að vera jafn gáfaður og ég.

Portobello gata og klám

Almennt, Bjór, Ferðalög, Skemmtun, Skóli — Jói on apríl 20, 2008 at 14:36

Þá er Sonja farinn til Íslands aftur eftir skemmtilega helgi - verð að viðurkenna að það var ansi erfitt að horfa á eftir henni í lestina, erfiðara en ég bjóst við en hún kemur nú fljótt aftur til London.

Sonja heimsótti vinkonu sína á föstudeginum en við Hjölli fengum okkur tvo bjóra með krökkunum í skólanum okkar Gideon kennara en þetta var síðasta vikan sem hann verður með okkur, fáum nýjan kennara í næstu viku. Á neðstu hæð skrifstofuhússins sem skólinn er til húsa er skemmtielgur pöbb með leðursófasettum, poolborðum og ýmislegu skemmtilegu og er vaninn að safnast þar saman á föstudögum. Gideon splæsti umgang af bjór á alla nemendurna, 12 talsins um leið og við mættum niður - kom okkur skemmtilega á óvart.


Hinn ofurkurteisi og þægilegi Gideon í Escape bol.


Hérna er hluti af hópnum. Blökkumaðurinn lengst til vinstri talar lítið og það sem hann talar skilst eiginlega ekki, einhver útnára enska sennilegast. Sá með strípurnar til vinstri er sá sem kann mest og er búinn að vinna inn sér peninga fyrir lífstíð með pókerspilum. Hann og unnusta hans spurðu okkur hjölla að fyrra bragði í síðustu viku hvort við vildum kannski koma með þeim út að borða í næstu viku, kom okkur skemmtilega á óvart. Ég er þarna með bjór framaní andlitinu eins og vanalega. Við duttum í það sl. föstudag með dökkhærða gaurnum hægra megin við hliðina á mér eins og áður hefur komið fram. Sá næsti er mjög dularfullur - við höfum aldrei heyrt hann mæla orð og tók ég ekki eftir honum í lítilli skólastofunni fyrr en langt var liðið á aðra viku. Við spiluðum knattspyrnu við þann næsta í einu hádeginu í síðustu viku - skemmtilegur fír. María sú spænska er sú næsta. Gaurinn í gráu peysunni er frá Birmingham og er að ég held múhaðmeðstrúar. Gráhærði kallinn er aldursforsetinn og mjög fínn náungi. Nuff said.

Við fengum okkur að borða um kvöldið með Sonju á Tequila Tex Mex sem er hérna skammt frá “íbúðinni” okkar. Við fengum okkur kokteila eftir matinn og var kominn einhver djammglampi í augun á þeim tveimur sem mér leist ekkert á enda orðinn þreyttur. Það var þó að samkomulagi að fá okkur einn bjór fyrir svefninn á hverfispöbbalingnum okkar.

Hjölli er svo mikill stuðbolti að það þyrfti stundum að sprauta hann niður.

Uppgötvun helgarinnar var sennilegast Portobello road, en þetta er víst stærsti antikbasar í heimi ef maður á að trúa þeim sjálfum. Við Sonja hofum bæði afskaplega gaman af því að skoða svona gamla hluti og Hjölli ekki síður. Við hittum maríu skólafélaga okkar og Carlos unnusta hennar í morgunkaffi og þau gengu með okkur um Portobello fram eftir degi - Sonja fékk að æfa spænskuna sína sem var bara mjög góð verð ég að segja. Um kvöldið fórum við þrjú á sýninguna Kabaret sem var strípalingasýning hin mesta og er Hjölli þegar byrjaður að skipuleggja að fara aftur á hana - mér nægir eitt skipti.

Menningastofnanirnar British Museum og H&M voru á dagskránni í dag. Þetta er sennilegast fjórða skiptið sem ég fer á þetta safn (ekki þó allt í þessari ferð) og maður verður ekki leiður á því að skoða magnaða hlutina sem hafa verið rænt af þjóðum út um allan heim - sérstaklega er Egypska deildin í uppáhaldi hjá mér.

Hér eru nokkrar myndir frá laugardeginum:


Sonja og Hjölli fá sér snarl á einum af betri búllum bæjarins.


Ég er þarna mjög þreytulegur en það er sennilegast að hluta til útaf því að Hjölli lagði fyrir mig uppblásnu og þunnu dýnuna sína á gólfið fyrir mig og var það tilbúið þegar ég kom heim frá Liverpool stöðinni eftir að hafa náð í Sonju. Ég hélt að hann væri búinn að blása í hana og græja allt en varð hissa þegar ég lagðist til svefns hvað hún var í raun óþægileg og við gætum ekki boðið Sigga og öðrum gestum upp á þetta síðar í ferðinni. Daginn eftir kom í ljós að dýnan var vita loftlaus og ég líka eftir erfiða nótt.


Ágæt mynd af Sonju en ekkert spes af Hjölla.


Þarna erum við ofarlega á Portobello.


Gleiðlinsa fátæka mannsins.

Nörbar í 3D

3D, Bjór, Ferðalög — Jói on apríl 16, 2008 at 15:34

Þessi vika er búin að vera frekar þurr í skólanum því það er búið að messa yfir okkur notkun á hundruðum tóla til að vinna með NURBS í kerfinu og allskonar aðferir við að nota þá og ótal hluti sem geta komið uppá við notkun þeirra. í næstu viku fara hlutirnir síðan að gerast því þá eiga allir að vinna í eigin verkefnum við að módela einhvern hlut, helst gamlan þannig að það er hægt að setja allskonar ryð og dót á módelið. Ég ætla að módela gamla myndavél en Hjölli smásjá.

Þessa mjólkurskál bjó ég til í dag í skólanum með Nurbum.

Við höfum snætt Indverskan mat síðustu þrjá daga. Í gær var stöðuluð rútína þegar Haukur er í London sem hljómar svona: Við klárum skólann kl. 17:05 hendumst upp í leigubíl eins og við séum að missa af lest og biðjum hann að keyra með okkur á Paddington stöðina. Þar hlaupum við út úr bílnum og út á horn þar sem við hittum Hauk í jakkafötum með tösku í eftirdragi og við höldum inn á barinn Pride of Paddington. Þar setjumst við á þriðja borð og drekkum tvo umganga af John Smith, Haukur tekur fyrstu umferð en ég þá síðari. Síðan leiðir Haukur okkur út á Indverskst veitingahús, en þau eru alltaf mismunandi þangað til við höfum fundið það rétta. Haukur pantar þrjár máltíðir og Kingfisher bjór og við borðum og drekkum tvo bjóra á staðnum. Þegar það eru 5 mínútur í að lestinn hans Hauks áleiðis til Heathrow leggi af stað rýkur Haukur upp, hendir 20 pundum á borðið (helst þegar ég er á klósettinu) og skilur okkur eftir til að baktala hann. Nákvæmlega þessa rútinu höfum við tekið tvisvar en það er strax komin sterk hefð fyrir þessu.

Are you bitter in my garden?

Bjór, Knattspyrna — Jói on apríl 13, 2008 at 16:15

Sá bar sem við höfum mest stundað við fótbolta og bjórrannsóknir okkar heitir The Green og er staddur orskotsstund frá skólanum og í göngufæri við íbúð okkar hina fyrri. Það er sæmilega svæsinn local pubb með fastagestum og vinalegu starfsfólki sem er byrjað að heilsa okkur sem einum úr fjölskyldunni þó við höfum ekki komið mjög oft á staðinn. Við fórum t.d. og horfðum á hádegisleik á síðustu helgi og þá var megn klórlykt inni á staðnum, nota svipaða tækni við að þrífa eins og í sundlaugum. Þegar ég gekk inn á klósettið fékk ég í augun af klórnum en maður veit þó að barflugurnar ættu að drepast.

Í dag fluttum við í hádeginu og fórum í gönguferð niður á Portobello Road. Það brast skyndilega á með hellidembu og áttum við fótum okkar fjör að launa inn á næsta bar. Reyndist þetta flottasti bar sem við höfum augum litið - er nánast óbreyttur frá því hann var opnaður fyrir 300 árum ef ég fer með rétt mál. Barinn sjálfur er stúkaður af og þarf maður að beygja sig og ganga í gegnum lítil göt til að komast á milli bása. Hitt herbergið var eins og enskur heldrimannaklúbbur. Ekki skemmdi fyrir að bjórinn sem staðurinn bauð uppá var allur bruggaður á staðnum.
Við fórum síðan og horfðum á Manchester United - Arsenal á pubb hérna skammt frá og sátum í hliðarherbergi með heitum Arsenal mönnum sem var gríðarlega gaman því þessir gaurar voru hressir og málglaðir. Við munum örugglega horfa á fleiri leiki þarna.


Heldrimannaherbergið.


Ég að fara á milli bása - með fótboltabullum að horfa á leikinn.

Það er oft talað um hvað Íslendingar eru óstundvísir. Það er þó á einu sviði sem það á alls ekki við … knattspyrnuleikir á pöbbum. Á Íslandi þarf maður helst að vera mættur 2-3 tímum fyrir leiki til að ná sætum. Hérna getur maður mætt hálftíma fyrir leik og náð ágætum sætum og þegar leikurinn er byrjaður er staðurinn allt í einu pakkaður.

Við Hjölli höfum verið að prófa okkur áfram með að drekka bitter bjóra. Maður hefur alltaf haft það á tilfinningunni að bitter sé afskaplega vondur bjór eða öl en því er öðru nær. Bitter svipar mikið til Guinnes bjórs og getur verið alveg ágætur. Pubbar hérna bjóða upp á talsvert úrval og höfum við þegar smakkað þrjár tegundir. síðast smökkuðum við Courage Directors Bitter sem var fínn. Við erum bitter menn … ætli cider verði ekki næst á dagskránni.

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn