Að kunna fótbolta

Knattspyrna — Jói on nóvember 15, 2008 at 06:48

Ég ræddi í síma við lítinn frænda minn sem býr á Patreksfirði og er um 7-8 ára.

Hann sagði mér frét því að Sigfús handboltakappi hafi komið í íþróttahúsið til að kenna þeim skotbolta. Ég spurði hann hvort hann væri að æfa handbolta og hann játti því. Ég spurði hann þvínæst hvort hann væri líka að æfa fótbolta en hann svaraði því að hann kynni fótbolta og þyrfti því ekki að æfa hann. Hann kynni m.a.s. að taka skæri. Maður spyr af hverju atvinnumenn eru eiginlega að fá borgað fyrir að æfa, kunna þeir ekki fótbolta?

Enski boltinn er sýktur

Knattspyrna — Jói on september 8, 2008 at 03:23

Þrjár fréttir úr enska boltanum sem ég rak augun í í morgun:

1
Indian tycoon Anil Ambani will fly into the UK on Monday with his sights set on taking over a Premier League club. Newcastle are top of his hit list but he will have to see off competition from a branch of the Abu Dhabi royal family.

2
Manchester City’s prospective new owners ADUG want to create club-branded energy drinks, fast-food outlets, phone cards and even cars and scooters.

3
Chelsea midfielder Deco believes the only reason Robinho swapped Real Madrid for Manchester City could be money-related.

Þetta er algjörlega hætt að snúast um knattspyrnulega réttlætiskennd.

JT fyrirliði

Knattspyrna, Íþróttir — Jói on ágúst 20, 2008 at 01:58

Sá eftirfarandi klausu hjá áhanganda enska landsliðsins um að John Terry hafi verið gerður að fyrirliða:

“Great - makes life a lot easier. There is something so fitting that England - home to gratuitous, mindless violence, churlish, boorish behaviour, rampant in-your-face materialism and a brainless tabloid culture choose this hideous urinating lout to captain our national team of overpampered, overpaid, undertalented morons. May they fail in every endeavour.”

Annar hafði þetta um málið að segja:

“Rio has more pace, is better at heading and tackling, and has a greater tactical understanding of the game (for me the most important quality in a captain). Maybe Capello went with JT as he has more experience in leading a side of overpaid underahievers!”

Íslenska landsliðið er að gera frábæra hluti þarna úti - ég ætla að horfa á næsta leik þeirra.

Hollensk klipping

Knattspyrna — Jói on júní 13, 2008 at 13:44

Í tilefni glæsilegs sigurs Hollenska landsliðsins í kvöld ætla ég að fá mér Marco Van Basten klippingu á morgun.

Þvottadagur

Bjór, Knattspyrna, Listir, Skóli — Jói on júní 10, 2008 at 14:10

Það hefur lítið heyrst af okkur Hjölla hérna undanfarið og er það að hluta til vegna anna í skóla ásamt samkvæmislífi síðustu helgi. Skólinn gengur vel, Hjölli er reyndar ekki alveg sáttur með hvað hægt gengur í hans kennslu vegna þess að 1-2 nemendur eru seinni en aðrir en hann er samt að læra helling og það er það sem skiptir máli.

Ég er ekki aðeins að læra um animation í mínum bekk heldur hefur Jeff kennt okkur teikningu og það sem skiptir máli í leiklist. Við tókum heilan dag um daginn þar sem breskur leikhúsleikari kom, að nafni Richard Knight (http://mimethegap.com), og var með bekkin allan daginn að kenna okkur látbragðsleik og ýmislegt sem viðkemur leiklistinni. Allan daginn þufti maður að fara fyrir framan bekkinn hvað eftir annað og leika eða láta eins og kjáni og var þetta eins og heill dagur í samkvæmisleikjum. Í lokin höfðum við 10 mínútur til að semja leikrit í anda Commedie del’arte sem er tegund af leik þar sem allt er ýkt út úr korti og notast er við grímur til að túlka þekktar persónur úr þessu leikformi.
Það var frekar erfitt að takast á við þetta verð ég að játa en ætli stirðbusalegur og lokaður Íslendingaþurs hafi nú ekki bara gott af þessu? Ég held það bara.


Hérna vorum við í leik þar sem notast var við hvítar grímur og nemendur áttu að stilla sér upp eins og um fjölskyldumynd væri að ræða og reyna að túlka einn fjölskyldumeðlim án tals og restin af bekknum átti að giska á hvaða persóna þetta væri (ég ákvað að leika snobbaðann frænda).

Lokaverkefnið mitt mjakast sem felst í því að taka kvikmyndabút, eða tal úr kvikmynd réttara sagt, og setja það í nýjan búning í teiknimynd. Ég tók fyrir kafla úr Princess Bride og gleð þar sennilegast Halla vin minn ásamt því að ná að gleðja Búrkna líka með því að nota staðlaða grímu-með-gleraugu-nefi-og-yfirvaraskeggi grímu, sem hann hefur ákaflega gaman af. Ég set inn lokaútkomuna í lok næstu viku.

Við fórum í grillveislu til bekkjarfélaga Hjölla á laugardaginn sem er frá Sviss. Hann er að leigja lengst úti í rassgati og tók það okkur um klukkutíma að komast á staðinn. Eftir grillið fórum við á bar sem hann var búinn að sérvelja þarna í hverfinu og reyndist hann ansi fámennur. Eftir fyrri leikinn fórum við í annað hverfi þarna nálagt þar sem Graham, sem var þarna með okkur, gekk í háskóla á yngri árum og kynnti hann okkur fyrir helstu börum staðarins. Ágætt kvöld sem endaði nærri því illa þegar reiðhjólamaður hjólaði á Graham á fullri ferð þegar við vorum á leið heim en sem betur fer sluppu þeir með mikil meiðsli.

Læt nokkrar myndir fylgja ykkur til yndisauka:


Greham að búa til heimatilbúna hamborgara og gestgjafinn (vélaverkfræðingur en furðu heilbrigður að öðru leiti) spaugast við Hjölla.


Eitthvað verið að sprella þarna.


Setið úti í dæmigerðum enskum garði og beðið eftir borgurunum.


Fámennt en góðmennt á staðnum sem við horfðum á leikinn með Sviss.


Það er ekki nóg að drekka eintóman bjór, maður verður líka að fá næringu! Hérna erum við að fá okkur Esspresso.


Á leið heim seint um kvöldið.


Umvafinn fallegum svanasöng í Hyde Park á sunnudaginn.

Læt þetta duga í bili.

Þitt lið á EM

Knattspyrna — Jói on júní 2, 2008 at 16:13

Ég hef pælt aðeins í því hvaða lið ég ætla að styðja á EM í sumar og hef tekið afstöðu: Frakkland, bestu þjóð Evrópu.

Þau lið sem ég var að gæla við að styðja en náðu ekki efsta sætinu voru t.d.:
Portúgal: Ronaldo er farinn að fara í taugarnar á mér vegna þess hversu óöruggur hann er alltaf um veru sína hjá United
Holland: Yfirleitt skemmtilegir en Nistelrooy og svipaðar týpur eru leiðinlegir. Mætti samt ganga vel.
Ítalía: Hef yfirleitt haldið með þeim en liðið er ekkert spes núna og þvílík spilling í gangi í boltanum hjá þeim (spillingarmál höfðu reyndar ekki áhrif á þá síðast).
Spánn: Æi, veit það ekki - jújú, þeim mætti alveg ganga vel.
Svíþjóð: Sonja er ættuð þaðan en Skandinavar hafa aldrei kunnað að spila knattspyrnu.

Hvað verður þitt lið í keppninni?

Þrívíddarskólinn þinn

3D, Bjór, Ferðalög, Knattspyrna, Skóli — Jói on maí 13, 2008 at 15:06

Við Hjölli höfum haft mikið að gera undanfarið þannig að lítið hefur heyrst af okkur hérna. Siggi var hjá okkur í nokkra daga og kom hann með okkur á lokahóf fyrra námskeiðsins á föstudaginn sem reyndist hið besta djamm, eins og maður segir stundum. Á laugardaginn sáum við Ebbsfleet krýnda bikarmeistara á mögnuðum Wembley leikvanginum í norður London.

Við höfum haft magnaða kennara á námskeiðunum fram að þessu og hjölli er núna með magnaðann kennara sem heitir Nick Savy. Sá kappi hefur unnið við margar stórmyndir og þætti og módelaði t.d. Batman fyrir áhættuatriðin í Batman Begins, Harry Potta, gerði Gorillaz videoið fræga og margt fleira. Ég er bara með Pixar gaurinn.
Allur skóladagurinn hjá Hjölla (og annarra nemenda með honum í bekk) fór í að finna myndir af nöktum karlmönnum á netinu að beiðni kennarans (ætli reynslan hafi ekki komið sér vel þar?).

Í dag skráði ég mig á aukanámskeið sem mun standa í viku þannig að ég verð einni viku lengur en ég ætlaði. Það er námskeið í Pixar Renderman sem ég hef áhuga á að skoða betur. Parísarferð okkar Sonju frestast því um viku.

Er ekki málið að láta nokkrar velvaldar myndir frá helginni tala sínu máli:


Dæmigert chill - hérna erum við á púbbnum við hliðina á íbúðinni okkar.


Siggi fúll með að Haukur sé að líkja honum við Fritzl (og þá er ég ekki að tala um köttinn).


Fyrir utan völlinn ásamt Andy (frá Sviss) og Graham tjalla sem eru með okkur á námskeiðinu.


Wembley leikfangurinn er svo sannarlega stórkostlegur.


Vinnufundur.


Öfugt ræs.


Oft eru ansi flottir bílar á götunum hérna í hverfinu hjá okkur.


Eins og sést er ég orðinn vel tannaður.


Minningarreitur Díönu í Hyde Park er ótrúlega þægilegur staður.


United enskir meistarar.

Við Hjölli gengum rétt áðan út af Pizzastað í fússi án þess að borða matinn okkar. Lifi meðvitaðir neytendur!

Væl Manchester manna

Knattspyrna — Jói on apríl 27, 2008 at 07:33

Djöfull er ég þreyttur að hlutsa á tuð um dómara, vítaspyrnudóma og annað eftir leiki hjá framkvæmdastjórum í enska boltanum. Ég er United maður en það sem Ferguson og Queroz létu út úr sér eftir leikinn á móti Chel$ki finnst mér skammarlegt og þeir ættu aðeins að fara að hugsa um hvernig þeir láta í fjölmiðlum. Í leiknum sjálfum var sama sagan, leikmenn að öskra og hella sér yfir dómarana og voru United menn sennilega sínu verri en Chel$ki menn, sérstaklega Ferdinand, Roona og Hargreaves. Geta þessir blessuðu menn ekki bara einbeitt sér að leiknum í staðin fyrir að vera að þessu endalausa væli? Þegar hlutirnir eru skoðaðir í endursýningu sést oft að það er ekkert að marka sem þessir menn segja - vítaspyrnudómur þarna, ekki vítaspyrna þarna - þeir ættu kannski að halda kjafti þangað til þeir geta skoðað hlutina í endursýningum og séð hvort þeir hafi haft rétt fyrir sér af hliðarlínunni.

Dómarar gera mistök eins og leikmenn. Ekki eru þeir að úthúða ákveðnum leikmönnum sem gera mistök í leikjum.

Knattspyrnuleg réttlætiskennd minn rass!

Áfram United!

Fóbó

Knattspyrna — Jói on apríl 22, 2008 at 15:02

So why do you smile when you think about Earl’s Court?
But you cry when you think of all the battles you’ve fought (and lost)?

Ég las ævisögu Alex Ferguson fyrir nokkrum árum síðan en hann er á people-to-kill lista margra félaga minna. Þetta er svona dæmigerð fótboltabók þar sem er fjallað um tapaðar orrustur en þó meiri áhersla á glæsta sigra og ekkert verið að reyna að gera bókmenntalegt meistaraverk úr frásögninni. Í byrjun eins kaflans bregður þó útaf þessu þarsem Ferguson verður örlítið heimspekilegur. Hann er þá staddur með skoska unglingalandsliðinu, sem hann stjórnaði á árum áður, á Íslandi. Eftir leikinn, sem var háður um sumar, situr hann með aðstoðarþjálfara sínum um kvöld uppi á Grillinu með yfirsýn yfir alla Reykjavík. Þar horfir Fergi á kvöldsólina og segir: “Life is good.”

Life is good!

Roman, Real og ég

Knattspyrna, Kvikmyndir — Jói on apríl 20, 2008 at 14:48

Eins og áður sagði þá eyddum við fyrri hluta laugardags með Maríu samnemenda okkar og Carlos unnusta hennar sem eru frá Madríd. Þar átti þetta samtal sér stað:

J: Hvernig velur fólk í Madrid hvort það styðji Real Madrid eða Atlitico Madrid - er það trú, borgarhluti eða eitthvað allt annað?
C: Aumingjar velja Atletico - sigurvegarar velja Real. Ég var einusinni aumingi.

Hann hefur reyndar engan áhuga á knattspyrnu en þessi setning hans var ansi hnittin. Það var gaman að spjalla við þennan gaur, mjög lítillátur þó hann hafi afrekað ýmislegt í kvikmyndabrannsanum. Hann hannaði og smíðaði t.d. stóran hluta af sviðsmyndinni af Pans Labrinith eins og ég hef áður sagt frá en núna síðast vann hann að stórmynd sem átti að heita Pompeii en hún fjallar um þrjá síðustu dagana í borginni fyrir eldgosið. Roman Polanski (sem er reyndar mjög góður vinur Carlosar) var leikstjóri og margir stórleikarar eins og Scarlett Johanson áttu að leika og ekkert átti að spara til að gera hana sem glæsilegasta - yrði sennilegast ein dýrasta mynd allra tíma. Þegar það var búið að vinna í myndinni í 2-3 mánuði og Carlos búinn að hanna mjög flott sett var ákveðið að hætta við myndina og er engin von til þess að hún verði gerð. Sorglegt því þessi mynd hefði verið mjög áhugaverð.

Are you bitter in my garden?

Bjór, Knattspyrna — Jói on apríl 13, 2008 at 16:15

Sá bar sem við höfum mest stundað við fótbolta og bjórrannsóknir okkar heitir The Green og er staddur orskotsstund frá skólanum og í göngufæri við íbúð okkar hina fyrri. Það er sæmilega svæsinn local pubb með fastagestum og vinalegu starfsfólki sem er byrjað að heilsa okkur sem einum úr fjölskyldunni þó við höfum ekki komið mjög oft á staðinn. Við fórum t.d. og horfðum á hádegisleik á síðustu helgi og þá var megn klórlykt inni á staðnum, nota svipaða tækni við að þrífa eins og í sundlaugum. Þegar ég gekk inn á klósettið fékk ég í augun af klórnum en maður veit þó að barflugurnar ættu að drepast.

Í dag fluttum við í hádeginu og fórum í gönguferð niður á Portobello Road. Það brast skyndilega á með hellidembu og áttum við fótum okkar fjör að launa inn á næsta bar. Reyndist þetta flottasti bar sem við höfum augum litið - er nánast óbreyttur frá því hann var opnaður fyrir 300 árum ef ég fer með rétt mál. Barinn sjálfur er stúkaður af og þarf maður að beygja sig og ganga í gegnum lítil göt til að komast á milli bása. Hitt herbergið var eins og enskur heldrimannaklúbbur. Ekki skemmdi fyrir að bjórinn sem staðurinn bauð uppá var allur bruggaður á staðnum.
Við fórum síðan og horfðum á Manchester United - Arsenal á pubb hérna skammt frá og sátum í hliðarherbergi með heitum Arsenal mönnum sem var gríðarlega gaman því þessir gaurar voru hressir og málglaðir. Við munum örugglega horfa á fleiri leiki þarna.


Heldrimannaherbergið.


Ég að fara á milli bása - með fótboltabullum að horfa á leikinn.

Það er oft talað um hvað Íslendingar eru óstundvísir. Það er þó á einu sviði sem það á alls ekki við … knattspyrnuleikir á pöbbum. Á Íslandi þarf maður helst að vera mættur 2-3 tímum fyrir leiki til að ná sætum. Hérna getur maður mætt hálftíma fyrir leik og náð ágætum sætum og þegar leikurinn er byrjaður er staðurinn allt í einu pakkaður.

Við Hjölli höfum verið að prófa okkur áfram með að drekka bitter bjóra. Maður hefur alltaf haft það á tilfinningunni að bitter sé afskaplega vondur bjór eða öl en því er öðru nær. Bitter svipar mikið til Guinnes bjórs og getur verið alveg ágætur. Pubbar hérna bjóða upp á talsvert úrval og höfum við þegar smakkað þrjár tegundir. síðast smökkuðum við Courage Directors Bitter sem var fínn. Við erum bitter menn … ætli cider verði ekki næst á dagskránni.

Lífið

Almennt, Knattspyrna — Jói on apríl 1, 2008 at 16:11

Hvað er betra en að mæta upp á herbergi eftir gott djamm, kveikja á settinu og þar er Eddie Hitler að tala um Johnny Depp?

United átti ekki í neinum erfiðleikum með fantalélegt lið Roma í kvöld. Stálmaðurinn Nimadja Vidic meiddist og ég sá ekki betur en logsuðutæki hefðu verið notuð til að koma honum í gang á hliðarlínunni enda er maðurinn úr stáli í gegn. Ronaldo, sennilegast besti leikmaður heims í dag, kom svífandi eins og erkiengill í gegnum alla vörnina og skallaði boltann örugglega í markið. Toiletti og félagar í Roma höfðu ekkert svar og eru eiginlega búnir að stimpla sig út úr keppninni, á því er enginn vafi. Dómarinn var reyndar prakkari en náði þó ekki að skemma leikinn.

Sonja kemur í rómantíska ferð til London í heimsókn um miðjan apríl. Við Hjölli fundum fullkomið prógram áðan á laugardeginum þegar Sonja verður hérna. Svo er mál með vexti að við erum á svæði Queens Park Rangers sem er gamalgróið knattspyrnufélag. Þennan dag spilar QPR við Charlton og eftir leikinn verður lokahóf QPR og kosta miðar 10 pund, miklu fjöri er heitið. Við ætlum að taka Sonju á leikinn og á lokahófið - við lofum pottþéttri skemmtun. Aðrir gestir eru velkomnir … Siggi, Pálmi, Árni!

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn