Indverskt afmæli

Hérna er skemmtileg fjölskyldumynd sem við tókum í Bundi á Indlandi. Við lentum þar í litlu afmæli og er þetta hluti fjölskyldunnar.

Hérna er skemmtileg fjölskyldumynd sem við tókum í Bundi á Indlandi. Við lentum þar í litlu afmæli og er þetta hluti fjölskyldunnar.
Við erum þessa dagana að vinna að seinna bindinu í ferðasögu okkar til Indlands. Skemmtilegt að skoða myndirnar þegar svona langt er liðið því maður uppgötvar nýjar myndir sem maður man varla eftir að hafa tekið og vöktu enga sérstaka athygli hjá manni þegar maður sá þær síðast. Hérna eru tvær myndir sem ég uppgötvaði þegar ég var að skoða myndirnar í gær og sýna þær ágætlega litina í slæmum kvenna á kamelhátíðinni í Púskar.

Við þurfum að fara að hespa þessari bók af því ég er með fullt af verkefnum í huganum sem bíða og ég er að fjarlægjast bókina smátt og smátt. Hún er þó 90% tilbúin þannig að ég geri ráð fyrir að við klárum hana í næsta mánuði ef guð og gæfa lofar.

Þessi mynd er tekin í fjöllunum á milli Ladakh og Kasmír þegar við vorum á leið til borgarinnar ófriðsömu Srinagar. Ég held að þetta sé ein af betri myndunum sem við tókum í ferðinni og er ég að spá í að stækka hana upp í um meters breidd og innramma upp á vegg, held hún höndli það þar sem hún var tekin með hárri upplausn.
Ég bendi lesendum á að það er grein um ferðalög okkar Sonju í nýjasta hefti Útiveru. Þar er einn kafli birtur í heild sinni frá ferðalaginu okkar sl. haust og var kaflinn valinn þar sem ég var einn að villast um Katmandu á meðan Sonja var veik uppi á herbergi. Ég hef reyndar ekki séð greinina sjálfur en hef heyrt úti í bæ að blaðið sé komið út þannig að það er skylda að kaupa sér eintak.
Fór inn í stærstu bókabúð London núna um helgina með Hjölla í eftirdragi og þar í ljósmyndadeildinni var ein bók áberandi, The Icelandic Lightroom Adventure en sú bók skartar nokkrum myndum eftir mig. Skrítið að fletta bók í svona stórri bókabúð sem inniheldur myndir eftir mig - eiginlega súrealískt.
George Jardine einn af aðalmönnunum hjá Adobe sendi mér tölvupóst fyrir nokkru og benti mér á dóm um bókina þar sem gagnrýnandi hjá CNET sem þekktur er fyrir að vera dómharður nefndi sérstaklega “The Bergmanesque Effect” (sem ein af uppskriftum mínum í bókinni var víst kölluð) jákvæða umsögn. Gaman að þessu og gaman að hafa fengið tækifæri að taka þátt í þessu.
Við Sonja verðum annars með grein í júlíblaði Útiveru og munum líklegast eiga forsíðumyndina.
Rock on!
Við Hjölli erum á kafi þessa dagana að klára módelin okkar fyrir föstudaginn en þá lýkur grunnnáminu í Escape og þá skilja leiðir, Hjölli fer í Characters og ég í Animation.
Myndavélin mín er að taka á sig mynd og svona lítur þetta út núna:

Ég á eftir að setja meiri áferð á ýmsa hluta myndavélinnar og þá aðallega á linsuna en þar þurfa að vera númer og annað slíkt. Ég hendi inn lokaútgáfunni um helgina, verður sennilega töluverðar breytingar síðustu dagana fyrir skil.
Ég var beðinn um að skanna inn nokkrar myndir úr Bakkadal flestar úr Feigsdal þar sem ég var í sveit sem barn.
Ég ákvað að setja inn tvær af þessum myndum hér - veit reyndar ekki hver tók þær.

Bakkadalur frá skemmtilegu sjónarhorni.

Ingi að draga trilluna á land en ég fór einu sinni eða tvisvar með honum til sjós.
Það er gaman að þessum gömlu myndum.
Við Sonja fórum síðustu helgi í helgarferð á Kirkjubæjarklaustur og gistum þar tvær nætur á Icelandair hótelinu. Við vorum einu gestirnir á þessu stóra hóteli sem var frekar skrítið. Borðuðum m.a. 3ja rétta máltíð seinna kvöldið á hótelinu og vorum alein í matsalnum - ekki mikill gróði sem þeir hafa fengið þessa helgina blessaðir.
Við tókum nokkrar myndir í ferðinni og hérna eru fimm af þeim.

Þarna vorum við komin niður að Fjaðrárgljúfri eftir stutta göngu í snjónum.

Við fengum æðislegt veður.

Það er alltaf einmannalegt að sjá yfirgefna sveitabæi. Maður hugsar til þess að þarna hefur einhverntíman iðað allt af lífi, bjartsýnt fólk að byggja, börn að leik og hundar að sleikja sólskinið. Núna er ekkert - bara vindurinn sem syngur í rústunum.

Fallegt samspil gróðurs og snjó.

Snjór í svarthvítu.
Ég tók þessa mynd af munki í ferðalagi um Bútan seint á síðasta ári. Mér hugnast betur litmyndin held ég en sumir virðast “fíla” svarthvítu útgáfuna betur.
