Ljósmynda- og ferðasögubók um Indland

Óflokkað — Jói on apríl 23, 2010 at 04:13

Hérna er hægt að fletta Indlandsbókum okkar Sonju í mjög lítilli upplausn. Ég á þær í pdf formi í mun betri gæðum og síðan er auðvitað hægt að panta bara bækurnar og er það að sjálfsögðu í mestu gæðunum

Lokaverkefni lokið

Óflokkað — Jói on maí 8, 2008 at 09:50

Jæja, þá er maður búinn að klára verkefnið og allt kvöldið framundan þannig að ég kom sjálfum mér á óvart með því að þurfa ekki að taka “all-nighter” fyrir skil (deadline er kl. 11 í fyrramálið). Hjölli er líka búinn og kom hann mér einnig á óvart.

Hérna er lokaútgáfan:

Núna erum við Hjölli á leiðinni á Paddington barinn okkar en þar hefur Sigurður boðið okkur á bjórfund og er Haukur einnig viðstaddur.

Ciao bella!

Þrívíddarmódelingarverkefnisvinnutörnbeibí

Óflokkað — Jói on maí 2, 2008 at 16:44

Við Hjölli erum þesa dagana, ásamt þeim sem eru með okkur í tíma, á kafi í að módela persónuleg verkefni. Vikan hefur farið í módelinguna sjálfa og næsta vika fer í að setja “texture” eða áferð á það sem við erum að módela ásamt því að setja lýsingu. Ég er að módela myndavél og Hjölli er að vinna í að gera smásjá sem lítur bara helv… vel út hjá honum. Við höfum ekkert farið í það ennþá að setja góð lýsingu eða eðlilega áferð á hlutina en þetta þetta lítur svona út hjá mér núna:


Ambient occlusion pass heitir þessi áferð.

Eins og gengur þá fengum við Hjölli okkur nokkra drykki með skólafélögunum eftir skóla í dag. Ég spjallaði við strák sem situr fyrir aftan mig, hann er frá Birmingham en foreldrar hans eru Indverjar. Hann sagði mér að hann væri búinn að ver í ömurlegum vinnum síðustu 2-3 árin og sparað virkilega mikið fyrir því að komast í skólann. Hann væri samt andvaka á næturnar af áhyggjum að hann fengi ekki vinnu eftir námskeiðið í faginu - fær mann til að meta meira að maður hafi tækifæri á að fara í svona öflugt námskeið í faginu. Hann er búinn með háskólanám í hreyfimyndagerð og var að spá í að fara í mastersnám í þessu en prófessorinn han s sagði honum að fara frekar í nám í Escape studios. Hann sér ekki eftir því, er búinn að læra meira á þremur vikum en hann lærði á þremur árum í háskólanum. Hann sagði samt að hann vildi að það væri hraðari yfirferð, og er ég þar sammála en það er ekki á allt kosið - þetta sleppur og vel það.

Stórkostleg uppfinning

Óflokkað — Jói on apríl 8, 2008 at 15:23

Ég hef fylgst vel með tísku og öðrum straumum sem líða um götur og gangstéttir Lundúna síðan við lentum hérna fyrir skömmu. Eitt það sem ég hef tekið eftir er að karlmenn ganga um götur með töskur utaná sér án þess að blikna. Þetta er líklegast kallað “mans-bag” og virðist vera nokkuð heitt hérna. Ég er ekki viss um að ég mundi þora að ganga með slíkar töskur heima á klakanum en aldrei að vita nema það verði breyting á þegar við flytjum aftur heim (ef það verður ekki búð að sökkva eyjunni).

Ég ákvað að fjárfesta í einni slíkri tösku en þá tók við súpæling  hvernig skyldi bera hana. Eftir miklar pælingar, tilraunir og rannsóknir fann ég nýja byltingakennda leið til þess að bera þessar töskur og býst við að þessi aðferð muni flæða yfir borgina á næstu vikum ef ég næ ekki að fá einkaleyfi á henni til að stöðva pöbulinn og græða nokkrar krónur fyrir.

Svona eru tvær algengustu aðferðir við að bera þessar töskur í dag:
Toskur
Fyrri aðferðin er að hafa töskuna að framan - seinni aðferðin er að hafa hana að aftan og er öllu vinsælli.

Aðferðin sem ég datt niður á er að setja bandið á töskunni yfir höfuðið og láta hana hvíla á vinstri öxlinni þétt við hálsinn en samt þannig að hún meiði ekki. Hægri höndinni er smokrað undir bandið og yfir töskuna - taskan síðan látin síg þangað til hún hvílir að hægri hlið. Viti menn, hún situr kjurr og hvílir undir hægri rasskinn. Það væri jafnvel hægt að snúa þessu á hina hliðina en ég hef ekki prófað það ennþá. Hér er mynd af mér með töskuna í þessari útfærslu.

Hlidartaska

Hjölli var gríðarlega hrifinn af þessari hugmynd eins og gefur að skilja og kom fljótlega með snilldar heiti á hana, sem er orðið HLIÐARtaska. Það finnst mér gott og lýsa þessu nokkuð vel. Held ég haldi mig við það.

Hjölli er samt gríðarlega feiminn við mig þegar ég er með töskuna og er ennþá í Íslendingafílingnum að finnast þetta vera hommalegt. Hann þorir ekki fyrir sitt litla líf að fá sér svona þó hann langi enda er hann ekki jafn öruggur um kynferði sitt eins og ég er.

Næst er að fá sér kaskeiti og þegar ég tala um kaskeiti þá meina ég sixpensara.

Hannes Hólmsteinn og greiðsluörðugleikar

Óflokkað — Jói on mars 30, 2008 at 14:46

Hvaða áróðursrugl er þetta í blöðunum í gær að vinir HH séu að setja á fót söfnun til að styrkja hann í að borga þessar 3 millur sem hann á greinilega að borga vegna gjörða sinna. Er þetta ekki lúalegt áróðursbragð? Ef hann getur ekki borgað þessa upphæð eftir að hafa unnið í um 30 ár þá á hann ekkert erindi í að vera að kenna hagfræði.

Ég var reyndar að spá í að millifæra inn á reikninginn -1000000, aldrei að vita nema að það sé tölvuvilla og peningur fari þá útaf hans reikningi og inn á minn. Væri það ekki bara sanngjarnt?

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 2.5 License. | Eldklerkurinn